Í dag voru kallaðir út hópar frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu til að aðstoða bændur á Norðurlandi við að koma sauðfé í skjól og að aðstoða ferðamenn sem lent höfðu í vandræðum.
„Þetta er allt einhvern veginn að róast,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Hann telur smölun í Skíðadal vera lokið en þar þurftu björgunarsveitarmenn að aðstoða bændur við að koma fé sínu í skjól vegna mikillar snjókomu og hvassviðris sem var á norðanverðu og austanverðu landinu í nótt og dag.
„Það voru sendir hópar út í Flateyjardal og Fjörðum bara til þess að athuga hvort að einhverjir væru þar. Landeigandi hafði orðið var við einhverja umferð þangað fyrir helgi svo það var bara verið að tékka hvort eitthvað ferðafólk væri þar í vandræðum út af færð,“ en Jón Þór hefur ekki heyrt niðurstöður þeirra athugana ennþá.
Jón Þór segir ekki mikið meira vera að gerast í augnablikinu og það hafi ekki verið jafn mikið að gera eins og búist var við miðað við spá.
„Þetta virðist hafa farið betur. Ekki alveg jafn mikill snjór kannski, þó hann hafi verið þónokkur þarna víða. Vonandi tekur þetta bara fljótt upp, ekki síst mófuglanna vegna,“ segir Jón Þór.