„Þetta er bara hrikalegt vanmat og hugsunarleysi“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Erfiður dag­ur er að baki hjá Björg­un­ar­sveit­inni Dal­vík sem hef­ur unnið að því að koma sauðfé í skjól í Skíðadal við krefj­andi aðstæður. Björg­un­ar­sveit­armaður seg­ir að aðstæður hefðu hæg­lega getað orðið öðru­vísi en að van­mat og hugs­un­ar­leysi hafi komið í veg fyr­ir það. 

    Gul­ar og app­el­sínu­gul­ar viðvar­an­ir hafa verið um land allt og hafa björg­un­ar­sveit­ir verið kallaðar út í hin ýmsu verk­efni.

    Björn Már Björns­son úr Björg­un­ar­sveit­inni Dal­vík seg­ir björg­un­ar­sveit­ar­menn vera ný­komna inn í af­rétt­ina í Skíðadal er mbl.is náði af hon­um tali, en sveit­in hélt í út­kallið um klukk­an 7 í morg­un.

    Dag­ur­inn bú­inn að vera erfiður

    „Dag­ur­inn er bara bú­inn að vera erfiður, hreint út sagt. Þetta voru krefj­andi aðstæður. Það var mik­ill snjór í bökk­um, gildrög­um og börðum og eitt­hvað af því fé sem við fund­um var fennt,“ seg­ir Björn og nefn­ir að erfitt hafi verið að reka féð heim í hús.

    Það hafi t.a.m. verið vegna þess að féð var kleprað og þá sér­stak­lega lömb­in sem mörg hver báru á sér snjóköggla sem björg­un­ar­sveit­ar­menn þurftu að kroppa af á nokk­urra metra milli­bili sök­um þess að lömb­in gátu ekki leng­ur hreyft fram- eða aft­ur­lapp­ir sín­ar.

    „Það náðist því miður ekki allt, en flest fé sem var með lömb náðist. Ein­hverj­ir geld­ing­ar og hrút­ar eru eft­ir sem hafa það bara náðugt, þeir eru í skjóli.“

    Þá seg­ir Björn ger­breytt­ar aðstæður vera í daln­um núna þar sem byrjað er að helli­demba og loft að hlýna, sem er í takti við veður­spár veður­fræðinga um þróun dags­ins.

    Björgunarsveitarmenn þurftu að stoppa á nokkurra metra millibili til að …
    Björg­un­ar­sveit­ar­menn þurftu að stoppa á nokk­urra metra milli­bili til að taka snjóköggla af lömb­un­um sem gátu ekki hreyft sig. Ljós­mynd/​Lands­björg

    Ótrú­legt að veður­spár virðast ekki ber­ast rétt til manna

    Má bú­ast við því að farið verði í fleiri út­köll eða er þetta loks­ins eitt­hvað aðeins farið að ró­ast?

    „Við erum nátt­úru­lega alltaf til­bú­in. Við erum reynd­ar ekki vön því að sinna svona út­köll­um en reynd­ar á sama tíma í fyrra vor­um við í þessu og mig lang­ar að ít­reka það að við erum að fara þarna aft­ur fyr­ir sömu bænd­ur á sama stað, eins og hretið var í fyrra og aft­ur núna. Það er al­veg ótrú­legt að veður­spár virðist ekki ber­ast rétt til manna, sem sagt að menn lesi ekki rétt úr þessu.“

    Hann seg­ir bónd­ann sem á féð og dótt­ur hans aldrei hafa átt að senda féð út vit­andi hvaða veður væri á leið yfir landið.

    „Það fóru bænd­ur sem sinntu sínu fé af alúð og fóru þarna fram eft­ir í gær og í fyrra­dag til þess að koma fénu í ör­uggt skjól. En það var ekki gert þarna.“

    Van­mtat og hugs­un­ar­leysi

    Þá tek­ur Björn jafn­framt fram að hægt hafi verið að koma í veg fyr­ir að aðgerðin hafi orðið eins stór og hún varð.

    „Það sem vak­ir líka yfir okk­ur er að ef beðið hefði verið um aðstoð í gær þá hefði þetta tekið tvo tíma,“ seg­ir Björn og nefn­ir að aðstæður hafi verið tölu­vert meira krefj­andi í morg­un.

    „Þetta hefði ekk­ert þurft að fara svona og ég vil bara hrein­lega að það komi fram. Þetta er bara hrika­legt van­mat og hugs­un­ar­leysi hjá þess­um ein­staka bónda þarna af því þetta er ekki í fyrsta og annað skiptið sem þetta er akkúrat fyr­ir hann.“

    Bjprgunarsveitin Dalvík var kölluð út klukkan 7 í morgun.
    Bjprg­un­ar­sveit­in Dal­vík var kölluð út klukk­an 7 í morg­un. Ljós­mynd/​Lands­björg

    Urðu blaut­ir, kald­ir og þreytt­ir

    Þá seg­ir Björn auka mann­skap hafa verið kallaðan út á svæðið, ekki bara fjár­ins vegna, held­ur þaðan af síður til þess að leysa björg­un­ar­sveit­ar­menn af sem voru orðnir blaut­ir, kald­ir og þreytt­ir og þurftu á fata­skipt­um, nær­ingu og hvíld að halda.

    Veistu hvað það voru marg­ir svona um það bil sem komu að aðgerðunum?

    „Ég er ekki al­veg með það á krist­al­tæru en ég hugsa að það séu hátt í 50 manns. Það voru bænd­ur þarna líka að aðstoða.

    Það eru líka strák­ar þarna í björg­un­ar­sveit­inni sem eru inn­an úr sveit sem eru bún­ir að vera þarna um helg­ina og í gær að sinna sínu fé og það var svo mikið til fyr­ir­mynd­ar,“ seg­ir Björn og nefn­ir að þeim roll­um hafi verið komið fyr­ir í góðu yf­ir­læti í af­rétt­inni með nóg að borða.

    Eng­inn í hættu

    „En sam­heldn­in í þess­ari aðgerð var mjög góð, bæði við bænd­ur og aðrar bjarg­ir. Þetta gekk vel. Það var aldrei neinn í ein­hverri hættu. Við sett­um okk­ur bara ákveðin mörk.

    Þegar uppi er staðið var þetta bara skemmti­leg hreyf­ing og hjálp við þessa ágætu bónda,“ seg­ir Björn og nefn­ir að lok­um að aðgerðin hafi heilt yfir gengið „frá­bær­lega miðað við aðstæður.“

    Kalla þurfti auka mannskap á svæðið sökum þess að björgunarsveitarmenn …
    Kalla þurfti auka mann­skap á svæðið sök­um þess að björg­un­ar­sveit­ar­menn voru orðnir blaut­ir, kald­ir og þreytt­ir. Ljós­mynd/​Lands­björg
    mbl.is

    Bloggað um frétt­ina

    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert