„Það eru vandræði að þurfa að vera með kindurnar inni, en það verður að vera þannig þangað til að það skánar eitthvað,“ segir Benedikt Arnbjörnsson, bóndi á Bergsstöðum í Suður Þingeyjarsýslu, í samtali við mbl.is en í dag hafa bændur á Norðurlandi þurft aðstoð björgunarsveita við að koma sauðfé í skjól vegna veðurs.
Benedikt smalaði sínu sauðfé inn seinnipartinn í gær þar sem það spáði snjókomu.
„Það er akkúrat ár síðan það var allt vitlaust hérna, maður áttaði sig á því að það þýddi ekkert annað en að taka þær inn,“ segir Benedikt.
Spurður hvernig hafi gengið að smala kindunum inn segir Benedikt það hafa gengið vel en hann er með frekar fátt fé í stórum húsum.
„Spáin er þannig að það verður mikil úrkoma á morgun og fimmtudaginn,“ segir Benedikt en hann segist kannski munu setja féð út þrátt fyrir úrkomu ef það lægir.
Samkvæmt Veðurstofu Íslands má búast við mikilli uppsafnaðri úrkomu næstu tvo daga, sérstaklega á norðanverðu landinu í kringum Flateyjarskaga og Tröllaskaga.
Úrkoman getur leitt til skriðuhættu og vatnavöxtum. Skriðuviðvörun er því í gildi fyrir norðanvert landið, frá Ströndum að Glettingi. Greint er frá þessu inni á bloggsíðu Veðurstofu Íslands.