Vegir farnir að lokast

Vegurinn um Víkurskarð er ófær.
Vegurinn um Víkurskarð er ófær. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Veg­ur­inn um Vík­ur­skarð er lokaður og verður staðan á hon­um tek­in síðar í dag en Vega­gerðin vek­ur at­hygli á vef sín­um, um­ferðin.is, á gul­um og app­el­sínu­gul­um viðvör­un­um frá Veður­stofu Íslands sem eru nú í gildi um allt land og tölu­verðar lík­ur á sam­göngu­trufl­un­um.

Reikna má með hvassviðri og ofan­komu, slyddu eða snjó­komu og hálku til fjalla. Vegna veðurs gæti komið til lok­ana á veg­um með skömm­um fyr­ir­vara.

Varað er við mikl­um vind­hviðum á Kjal­ar­nesi og því ekki æski­legt að bíl­ar sem taka á sig mik­inn vind séu þar á ferð. Vara­sam­ar hviður verða á suðvest­an­lands fram eft­ir degi s.s. á Kjal­ar­nesi, und­ir Ing­ólfs­fjalli, í Sel­vogi og á sunn­an­verðu Snæ­fellsnesi.

Á Bröttu­brekku er élja­gang­ur og mjög hvasst og á Holta­vörðuheiði er hálka og élja­gang­ur.

Á Vest­fjörðum er hálka eða hálku­blett­ir og élja­gang­ur er víða á Fjall­veg­um. Hálku­blett­ir eru á Þrösk­uld­um. Snjóþekja og élja­gang­ur er á Gem­lu­falls­heiði og í Tungu­dal.

Á Norður­landi er þæf­ings­færð Al­menn­ing­um á Siglu­fjarðar­vegi einnig á Skaga­vegi. Krapi er Í Langa­dal en snjóþekja og élja­gang­ur á Öxna­dals­heiði, Þver­ár­fjalli og í Ólafs­fjarðar­múla en hálku­blett­ir á Ólafs­fjarðar­vegi.

Hálku­blett­ir eru á Mý­vatns­heiði, Mý­vatns­ör­æf­um en krapi og élja­gang­ur Möðru­dals­ör­æf­um og Hell­is­heiði eystri. Hálku­blett­ir og élja­gang­ur er á Hófa­sk­arði en snjóþekja og élja­gang­ur á Sand­vík­ur­heiði.

Ófært á Öxi og Breiðdals­heiði

Á Aust­ur­landi er ófært á Öxi og á Breiðdals­heiði og þá er krapi og élja­gang­ur á Fagra­dal, Fjarðar­heiði, Borg­ar­fjarðar­vegi og Vatns­skarði eystra.

Óvissu­ástand vegna hvassviðris er á leiðinn frá Ham­ars­firði og allt suður að Vík og get­ur veg­um lokað með stutt­um fyr­ir­vara. Á þess­ari leið er óveður og þar er í gangi mjúk­lok­un sem þýðir að stór­um bíl­um sem taka á sig mik­inn vind eru stoppaðir á meðan mesta veðrið geng­ur yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert