Ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu, rán og fjárkúgun

Þrír hafa verið ákærðir í Gufunesmálinu svokallaða.
Þrír hafa verið ákærðir í Gufunesmálinu svokallaða. Samsett mynd /Eggert/Sigurður Bogi

Þrír sak­born­ing­ar í Gufu­nes­mál­inu svo­kallaða hafa verið ákærðir fyr­ir mann­dráp, frels­is­svipt­ingu, rán og fjár­kúg­un. 

Þetta seg­ir Karl Ingi Vil­bergs­son, sak­sókn­ari við embætti héraðssak­sókn­ara, við mbl.is en í morg­un var farið fram á áfram­hald­andi gæslu­v­arðhald yfir tveim­ur sak­born­ing­anna til næstu fjög­urra vikna. Ekki þurfti að fara fram á gæslu­v­arðhald yfir þeim þriðja þar sem hann hef­ur hafið afplán­un vegna ann­ars máls.

Þeir hafa all­ir setið í gæslu­v­arðhaldi frá 12. mars síðastliðnum í tengsl­um við and­lát Hjör­leifs Hauks Guðmunds­son­ar sem fannst þungt hald­inn í Gufu­nesi og lést skömmu síðar. Hann var 65 ára gam­all og var bú­sett­ur í Þor­láks­höfn.

Á tíma­bili voru sjö í varðhaldi vegna máls­ins en fjór­um var sleppt. Karl Ingi seg­ir tvo til viðbót­ar hafi stöðu sak­born­ings en ekki hef­ur verið birt ákæra gegn þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert