Átján borgarstarfsmenn til Póllands

Starfsmenn félagsmiðstöðva fóru til Póllands í kynnisferð.
Starfsmenn félagsmiðstöðva fóru til Póllands í kynnisferð. mbl.is/Eggert

Starfs­menn Reykja­vík­ur­borg­ar, alls 18 að tölu, fjöl­menntu til Pól­lands í maí til að fræðast um hvernig frí­stund­a­starfi er háttað þar í landi.

Heim­sókn­in var svo­nefnd „stu­dy-visit“ ferð, sam­kvæmt svari frá Reykja­vík­ur­borg við fyr­ir­spurn Morg­un­blaðsins, og fékkst styrk­ur fyr­ir allri ferðinni frá Era­smus+ áætl­un Evr­ópu­sam­bands­ins. Kostnaður af ferðinni er ekki upp­lýst­ur í svar­inu eða nöfn þeirra sem fóru í hana.

Skipst á hug­mynd­um

„Til­gang­ur ferðar­inn­ar var meðal ann­ars að skoða fé­lags­miðstöðvar og fræðast hvernig frí­stund­a­starfi þar er háttað. Einnig til að kynn­ast landi og þjóð en hér á landi búa mörg börn og ung­ling­ar með pólsk­an bak­grunn. Bæði var farið í heim­sókn í stóra og litla fé­lags­miðstöð, hóp­ur­inn kynnti sér frí­stund­astarf fyr­ir fötluð börn, heim­sótti há­skóla og átti sam­tal við embætt­is­fólk og ung­menni. Skipst var á hug­mynd­um og tengsl­um komið á fyr­ir fyr­ir­huguð ung­menna­skipti sem mik­ill áhugi er fyr­ir,“ seg­ir í svar­inu.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert