Fjöldi einstaklinga sem greiddi tekjuskatt í efsta þrepi álagningarárið 2025 dróst saman um 1.700 manns frá fyrra ári og voru þeir nú ríflega 16 þúsund.
Þetta kemur fram í samantekt fjármálaráðuneytisins á vef Stjórnarráðsins um niðurstöður álagningar ríkisskattstjóra á einstaklinga vegna tekna og eigna árið 2024.
Hjá tæplega 55% sem greiddu tekjuskatt var 2. skattþrep þeirra hæsta skattþrep. 41% greiddi eingöngu í fyrsta þrepi og tæplega 4,6% greiddu í efsta skattþrepinu.
Framteljendur í álagningu voru 354.000 og fjölgaði um 9.500 á milli ára. Almennur tekjuskattur nam 259 milljörðum króna og fjármagnstekjuskattur 63 milljörðum króna.
Samtals nam tekjuskattur til ríkissjóðs 322 milljörðum króna og 387 milljarðar runnu í útsvar til sveitarfélaga.
Tæplega 250 þúsund manns fengu álagðan tekjuskatt og 339 þúsund álagt útsvar. Þeir sem höfðu engar tekjur sem falla undir skattstofn voru 16 þúsund og hlutfall þeirra lækkaði lítillega.
Heildareignir einstaklinga voru metnar á 13.258 milljarða í árslok 2024, en skuldir námu 3.350 milljörðum. Eigið fé jókst um 628 milljarða og munaði þar mest um fasteignaverð.