Gætu svipt Andrew Tate ríkisborgararétti

Andrew Tate.
Andrew Tate. Ljósmynd/ Andrew Tate

Yf­ir­völd í Vanúa­tú skoða það nú að svipta Andrew Tate rík­is­borg­ara­rétti sín­um. Þetta kem­ur fram í um­fjöll­un BBC.

Vanúa­tú er lít­ill eyja­klasi í Eyja­álfu þar sem um 340.000 manns búa. Tate hlaut rík­is­borg­ara­rétt þar árið 2022, um svipað leyti og hann var ákærður fyr­ir nauðgun og man­sal í Rúm­en­íu. 

Andrew Tate og bróðir hans Trist­an Tate voru í maí einnig ákærðir fyr­ir nauðgun í Bretlandi. Óljóst er hvort Trist­an hafi einnig haft rík­is­borg­ara­rétt í Vanúa­tú.

Keypti rík­is­borg­ara­rétt­inn

Vanúa­tú hef­ur stundað það að veita fólki rík­is­borg­ara­rétt sem fjár­fest­ir fyr­ir að minnsta kosti 130.000 banda­ríkja­dali eða 16,5 millj­ón­ir ís­lenskra króna. Þannig hlaut Tate sinn rík­is­borg­ara­rétt. 

Talsmaður yf­ir­valda þar seg­ir það hins veg­ar „klár­lega“ vera til skoðunar að svipta Tate rík­is­borg­ara­rétti sín­um í kjöl­far ákær­anna. 

Fyr­ir­komu­lagið hef­ur valdið áhyggj­um meðal ráðamanna í Evr­ópu­sam­band­inu en í fyrra svipti sam­bandið ríkið rétt­in­um að ferðast til Evr­ópu án vega­bréfs­árit­un­ar. 

Rík­is­borg­ara­kaup­in eru tal­in geta stuðlað að því að glæpa­menn nýti sér fyr­ir­komu­lagið til að kom­ast und­an refs­ingu rétt­ar­kerf­is­ins í sínu heimalandi.

Talsmaður yf­ir­valda í Vanúa­tú seg­ir þau ekki vilja stuðla að því og þess vegna sé mál Tate til skoðunar um þess­ar mund­ir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert