Inga breytir reglum um bílastæði

Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra.
Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bíla­stæði hreyfi­hamlaðra skulu nú vera sem næst aðal­inn­gangi bygg­inga og ekki fjær þeim en 25 metr­ar.

Um er að ræða nýtt ákvæði sem Inga Sæ­land, fé­lags- og hús­næðismálaráðherra, hef­ur sett inn í bygg­ing­ar­reglu­gerð nr. 112/​2012 en sagt er frá þessu á vef Stjórn­ar­ráðsins þar sem haft er eft­ir ráðherr­an­um:

„Áður leyfði reglu­gerðin fram­kvæmdaaðilum að staðsetja bíla­stæði fyr­ir hreyfi­hamlaða yst á bíla­stæðum og sem lengst frá inn­gangi. En ekki leng­ur.“

Nauðsyn­leg breyt­ing

Þá seg­ir Inga að nauðsyn­legt hafi verið að grípa inn í og breyta reglu­gerðinni.

„Regl­an um 25 metr­ana gild­ir alls staðar á Norður­lönd­un­um og auðvitað á það að vera eins á Íslandi. Gleym­um því aldrei að sam­fé­lagið okk­ar er fyr­ir okk­ur öll. Til að svo megi verða þurf­um við að tryggja aðgengi fyr­ir alla,“ er haft eft­ir Ingu.

Ákvæðið um 25 metra fjar­lægðarreglu vegna bíla­stæða hreyfi­hamlaðra var áður í gildi en var fellt brott úr reglu­gerðinni árið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert