Isavia hefur tekið þá ákvörðun að loka kaffiskúr leigubílstjóra á þriðjudaginn, en ráðherra í ríkisstjórn hafði lýst skúrnum sem „nyrstu mosku í heimi“. Er þessi ákvörðun tekin vegna skorts á viðhaldi í skúrnum.
Þetta segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við mbl.is en í dag sendi Isavia tölvupóst á leigubílstjóra til að upplýsa þá um ákvörðunina.
„Umræðan um afdrepið varð til þess að við fórum að skoða ástandið á skúrnum og úttektin leiddi í ljós að aðstaðan uppfyllti ekki kröfurnar sem eru gerðar til húsnæðis af þessu tagi. Salernisaðstaðan var ekki boðleg og aðstöðunni almennt ekki viðhaldið,“ segir Guðjón.
mbl.is hafði áður greint frá því að samkvæmt leigubílstjórum væri aðstaðan, og sérstaklega salernisaðstaðan, ekki góð í skúrnum eftir að hópur erlendra leigubílstjóra tók yfir skúrinn. Gólfið á salerninu var til dæmis sagt ítrekað blautt þar sem menn böðuðu fætur sínar í vaskinum fyrir bænahald.
„Við sem eigandi tökum fulla ábyrgð á því að viðhaldi hafi ekki verið sinnt,“ segir Guðjón.
Hann segir að leigubílstjórar geti notað salernisaðstöðu inn á flugstöðinni eins og aðrir þjónustuaðilar.
Yfirtaka erlendra leigubílstjóra á kaffiskúrnum vakti mikla athygli þegar Ríkisútvarpið greindi frá málinu. Var skúrnum lýst sem „bænahúsi“ af leigubílstjórum og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sagði að kaffiskúrinn væri „nyrsta moska í heimi“.