Möguleikarnir kynntir fyrir strákum og stálpum í HR

Fyrirlestrar, verklegar æfingar og fróðleikur voru meðal sýningarefna í HR …
Fyrirlestrar, verklegar æfingar og fróðleikur voru meðal sýningarefna í HR í dag. mbl.is/Eyþór

Ríf­lega þúsund strák­um og stálp­um í 9. bekk var boðið í heim­sókn í Há­skól­ann í Reykja­vík þar sem þau fengu kynn­ing­ar á því sem há­skóla­nám býður upp á.

Verk­efnið Strák­ar og stálp í há­skóla er sam­starfs­verk­efni JBT Mar­el og Brim með há­skól­an­um að fyr­ir­mynd verk­efn­is­ins Stelp­ur, stálp og tækni sem haldið hef­ur verið í HR síðan 2014.

Í stað þess að áhersla sé lögð á tækni­grein­ar, þar sem eru al­mennt fleiri strák­ar, var áhersla lögð á að sýna strák­um hvað há­skóla­nám gæti falið í sér, en æ færri strák­ar velja að sækja sér há­skóla­nám.

Ekki farið var­hluta af umræðunni

Sveinn Kjar­val, viðburðastjóri hjá JBT Mar­el sem styrk­ir viðburðinn ásamt Brim, seg­ist hafa fundið fyr­ir mikl­um áhuga frá nem­end­um þar sem hann kynnti starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins fyr­ir þeim.

Sveinn Kjarval, viðburðastjóri JBT Marel.
Sveinn Kjar­val, viðburðastjóri JBT Mar­el. mbl.is/​Eyþór Árna­son

„Við höf­um ekki farið var­hluta af umræðunni um vanda drengja í skóla­kerf­inu og vilj­um leggja okk­ar af mörk­um við að hjálpa fólki að finna sína leið. Þetta er part­ur af okk­ar mark­miðum, að auka sýni­leika tækni og hjálpa ungu fólki að skilja hvað er þarna úti,“ seg­ir Sveinn.

Áhuga­sam­ir um há­skóla

Andri, Hauk­ur og Þor­steinn í Sala­skóla gáfu sig á tal við blaðamenn og sögðu tæknikynn­ingu sem þeir höfðu fengið fyrr um morg­un­inn hafa verið áhuga­verða.

„Þau sýndu okk­ur alls kon­ar loka­verk­efni og mynd­bönd um það hvað nem­end­urn­ir gerðu í HR,“ sögðu þeir og bættu því við að það „gæti al­veg gerst“ að þeir færu í HR.

Um þúsund 14 ára krakkar komu á háskólakynningu í HR.
Um þúsund 14 ára krakk­ar komu á há­skóla­kynn­ingu í HR. mbl.is/​Eyþór

Verk­leg­ar æf­ing­ar í bland við fróðleik

Margt var um að vera í há­skól­an­um og ýms­ar stöðvar þar sem krakk­arn­ir gátu spreytt sig, til dæm­is við að smíða vatns­leiðslu­skúlp­túra og mæla hversu hratt sam­nem­end­ur þeirra gátu hlaupið.

Sumir virðast hafa hlaupið of hratt fyrir myndavélar.
Sum­ir virðast hafa hlaupið of hratt fyr­ir mynda­vél­ar. mbl.is/​Eyþór

Í íþrótta­fræðinni var krökk­un­um boðið að keppa við kenn­ara í jafn­fæt­is­hoppi og gripstyrk og kynnt­ust þeir vís­inda­leg­um mæl­ing­araðferðum íþrótta­fræðinn­ar í leiðinni.

Krakkarnir fengu að mæla eigin gripstyrk og bera saman við …
Krakk­arn­ir fengu að mæla eig­in gripstyrk og bera sam­an við kenn­ara. mbl.is/​Eyþór

„Við reyn­um að sýna þeim hvaða mögu­leik­ar geta sprottið út frá nám­inu og hvað þetta get­ur verið skemmti­legt – til dæm­is er einn hjá okk­ur sem hef­ur fram­kvæmt frammistöðugrein­ingu í enska bolt­an­um,“ segja leiðbein­end­ur í íþrótta­fræði.

Hver hoppaði öðrum hærra í jafnfætismælingunni.
Hver hoppaði öðrum hærra í jafn­fæt­is­mæl­ing­unni. Ljós­mynd/​Aðsend

Fyr­ir­lestr­ar og frum­kvöðlaferðir

Nem­end­ur sátu einnig fyr­ir­lestra, til dæm­is í lög­fræði. „Það er gam­an að sjá hvort við náum að kveikja áhuga­n­eista hjá ein­hverj­um, og þau eru merki­lega áhuga­söm miðað við að ég sé að kynna lög­fræði,“ seg­ir Andri Fann­ar Bergþórs­son, pró­fess­or við HR, og hlær við. Hann seg­ir þró­un­ina vera á þá leið að færri og færri strák­ar sæki um nám í lög­fræðinni.

Davíð Örn, fram­kvæmda­stjóri og ann­ar stofn­enda Smitten, kynnti frum­kvöðlaveg­ferð fyr­ir­tæk­is­ins og sagði mik­il­vægt að veita strák­um sér­stak­lega inn­blást­ur til að fara í há­skóla. „Það skipt­ir máli að fara í há­skóla, bæði upp á gagn­rýna hugs­un og að læra ein­fald­lega að læra. Við vilj­um líka sýna þeim að það er í lagi að gera mis­tök,“ bæt­ir hann við.

Sig­urður Svans­son og Hall­ur Jónas­son hjá Sa­hara kynntu starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins fyr­ir nem­end­um og ráku leið sína og lær­dóm gegn­um mennta­kerfið og at­vinnu­markaðinn. „Við erum að reyna að hvetja ungu krakk­ana, ungu strák­ana, til að sjá tæki­fær­in í því sem er framund­an.“

Nemendur fengu að sjá afrakstur HR-inga í námi sínu.
Nem­end­ur fengu að sjá afrakst­ur HR-inga í námi sínu. mbl.is/​Eyþór

Tækni og ný­sköp­un

Krakk­arn­ir fengu að skoða tækninýj­ung­ar í ýms­um geir­um, til dæm­is silkimjúka þræði úr basalti sem hafa gríðarlegt burðarþol og dróna­tækni.

Rafeindastofan vakti mikla lukku, en þar gátu nemendur fengið straum.
Raf­einda­stof­an vakti mikla lukku, en þar gátu nem­end­ur fengið straum. mbl.is/​Eyþór

Guðmund­ur Kristjáns­son við tækni­fræðideild HR sýndi nem­end­um margs kon­ar vél­menni sem smíðuð höfðu verið í há­skól­an­um og lýsti fyr­ir þeim nám­inu þar sem mikið er lagt upp úr að nem­end­ur læri hver af öðrum.

„Það er mjög gam­an að sýna þeim hvað við ger­um í tækni­deild­inni og hvað er í gangi í þess­um heimi í dag,“ seg­ir Guðmund­ur sem fagn­ar því að verið sé að halda kynn­ingu fyr­ir stráka til viðbót­ar við stelp­ur og stálp.

„Við sjá­um það að meiri fjöl­breytni í nám­inu leiðir til betra og víðsýnna náms­um­hverf­is – það verður meiri sam­vinna,“ bæt­ir hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert