Óttast að þurfa loka starfseminni um mánaðamót

Foreldrahús hafa verið starfrækt frá árinu 1999.
Foreldrahús hafa verið starfrækt frá árinu 1999. Samsett mynd/Eyþór/Hari

Hætta er á því að starf­semi For­eldra­húsa legg­ist út af um mánaðamót­in en ekki hef­ur tek­ist að gera samn­ing við ríkið um starf­semi fé­lags­ins. Fram­kvæmda­stjóri For­eldra­húsa seg­ir að ekki sé hægt að halda úti starf­semi fé­lags­ins án stuðnings frá rík­inu en samn­ingaviðræður við ríkið hafa staðið yfir í um ára­tug. 

For­eldra­hús eru óhagnaðardrif­in fé­laga­sam­tök sem sinna meðal ann­ars ráðgjöf, meðferð og fræðslu til for­eldra og ung­menna með hegðunar- og/​eða vímu­efna­vanda. Sam­tök­in hafa verið starf­rækt frá ár­inu 1999. Fé­lagið vinn­ur einnig náið með barna­vernd­ar­yf­ir­völd­um.

Berg­lind Gunn­ars­dótt­ir Strand­berg, fram­kvæmda­stjóri For­eldra­húsa, seg­ir í sam­tali við mbl.is að það muni verða afar dýr­keypt fyr­ir fjöl­skyld­ur lands­ins ef starf­semi fé­lags­ins leggst út af, þar sem fáir þjón­ustuaðilar veita sömu þjón­ustu og For­eldra­hús. Ótt­ast hún að for­eldr­ar muni ekki hafa í önn­ur hús að venda.

„Við höf­um talað við stjórn­völd í tíu ár og við höf­um óskað eft­ir að kom­ast á fjár­lög og óskað eft­ir samn­ingi. Það er eins og við séum að tala fyr­ir dauf­um eyr­um, eins og það sé ekki vandi,“ seg­ir Berg­lind. 

Óhepp­in með stjórn­arslit

Að sögn Berg­lind­ar er það mennta- og barna­málaráðuneytið sem ger­ir samn­ing við For­eldra­hús en heil­brigðisráðuneytið og fé­lags- og hús­næðismálaráðuneytið koma að gerð samn­ings­ins. 

Hún seg­ir að þau hafi verið óhepp­in með það að rík­is­stjórn­in hafi sprungið í haust þegar ný­lega hafði komið meiri hreyf­ing í viðræðurn­ar. Þá hafði for­eldra­hús ný­lega farið í gegn­um gæðaeft­ir­lit hjá fé­lags­málaráðuneyt­inu sem kom vel út og í kjöl­farið var bú­ist við frek­ari fregn­um. Hins veg­ar hafi stjórn­arslit­in haft þau áhrif að samn­ingaviðræðurn­ar séu aft­ur komn­ar á núllpunkt. 

Nú er naum­ur tími til stefnu og er hætta á að starf­sem­in legg­ist út af 1. júlí ef ekki tekst að gera samn­ing fyr­ir þann tíma. 

Von­ar það besta en til­bú­in fyr­ir það versta

Finnst ykk­ur öðru­vísi hljóð í þess­ari rík­is­stjórn miðað við þá fyrri? 

„Sko, þau voru dug­legri að henda í okk­ur brauðmol­um en ekki eig­in­leg­um samn­ing­um, en við vor­um alltaf að bíða eft­ir því,“ seg­ir hún og bæt­ir við:

„Það er ein­hvern veg­inn allt að byrja á núllpunkti.“

Aðspurð kveðst Berg­lind bjart­sýn á að það tak­ist að gera samn­ing við ríkið en að hún sé und­ir­bú­in fyr­ir það versta. 

„Ég trúi því ekki að þessi rík­is­stjórn sé að ýta mál­efn­um eins og okk­ar út í einka­rekst­ur. Þannig það verður gróði af ör­vænt­ingu og van­líðan fólks,“ seg­ir Berg­lind. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert