Samningi Hafnarfjarðar við skátafélagið Hraunbúa um viðhald á tjaldsvæðinu á Víðistaðatúni var aldrei sagt upp.
Þetta segir Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, í samtali við mbl.is. Valdimar segir samningaviðræður hafa staðið yfir í nokkurn tíma en að samkomulag hafi náðst.
Í gær birtist grein á mbl.is, þar sem fram kom í viðtali við Bjarna Frey Þórðarson, félagsforingja skátafélagsins Hraunbúa, að Hafnarfjarðarbær hefði einhliða sagt upp samningi við skátafélagið um viðhald á tjaldsvæði. Skátafélagið var ósátt þar sem samningurinn er stór tekjulind fyrir félagið og því um mjög áhrifamikla ákvörðun að ræða.
Valdimar segir samningaviðræður við skátana hafa staðið yfir í nokkurn tíma, þegar ljóst var að tjaldsvæðið var illa farið. Komist var að samkomulagi um ákveðinn milliveg í sumar til að vernda grasið en fara í viðhald í leiðinni til þess að starfsemi gæti farið fram í sumar á tjaldstæðinu.
Samningar náðust en Valdimar segir skátana aldrei hafa fengið staðfestingu á því frá bænum að samningurinn hafi verið formlega samþykktur í ráði. Hann segir þetta samkomulag þó samþykkt.
„Það var samt alveg ljóst, vegna ákvæðna í samningnum sem snúa að tjaldsvæðinu, að við þyrftum að taka upp samninginn til samtals við skátana um framhaldið, og það var byrjað,“ sagði Bjarni.
Valdimar segir umhverfis og framkvæmdarráð hafa fengið málið til sín og fjallaði um það út frá lóðinni og viðhaldi. Þau hafi lagt það til, við íþrótta og-tómstundanefnd, að samningurinn yrði endurskoðaður og samningnum eins og hann er núna sagt upp og hann endurskoðaður.
Íþrótta- og tómstundarnefnd tók málið fyrir í gær og bókuðu það að það þyrfti að taka samtal við skátana um endurskoðun á samningi sem snýr að tjaldsvæðinu. Niðurstaða nefndarinnar var því sú að ekki þyrfti að segja samningnum upp, heldur væri nóg að endurskoða hann.
„Samningnum hefur ekki verið sagt upp, heldur er í endurskoðun í samtali við Hraunbúa,“ segir Valdimar. Hann kveðst þó hafa fulling skilning á því að skátunum hafi brugðið vegna orðalags í tillögu umhverfis- og framkvæmdarráðs, þar sem tillagan snéri að því að það þyrfti að segja samningnum upp. Það var þó tillaga, en ekki ákvörðun.
Valdimar segir að samtalið um samninginn við skátana muni halda áfram núna og að til standi að tjaldsvæðið verði rekið í samstarfi við skátafélagið Hraunbúa.