Samræmt mat mikilvægt

Lilja D. Alfreðsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra.
Lilja D. Alfreðsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra. mbl.is/Karítas

Við inn­rit­un nem­enda í fram­halds­skóla fæst mest gagn­sæi við að styðjast við náms­ár­ang­ur að mati Lilju Al­freðsdótt­ur fv. mennta­málaráðherra. Hún tel­ur sam­ræmt náms­mat í grunn­skól­um „jafn­rétt­is- og sann­girn­is­mál“.

Þetta seg­ir Lilja í til­efni frum­varps Guðmund­ar Inga Krist­ins­son­ar, mennta- og barna­málaráðherra, þar sem m.a. kem­ur fram að heim­ilt verði við inn­rit­un í fram­halds­skóla að líta í aukn­um mæli til annarra þátta en náms­ár­ang­urs, t.d. sjón­ar­miða sem tengj­ast skóla­sam­fé­lagi viðkom­andi skóla til að tryggja fjöl­breytni í skóla­hóp­um.

„Það er afar mik­il­vægt að það sé sam­ræmt mat á stöðu nem­enda í grunn­skóla. Þess vegna var lagt til í minni tíð sem mennta­málaráðherra að sam­ræmd­um mats­ferli væri hrint í fram­kvæmd í grunn­skól­um lands­ins,“ seg­ir Lilja og bæt­ir við að mark­mið hans sé að draga upp ná­kvæma mynd af stöðu nem­enda.

Lilja seg­ir að stöðu- og fram­vindu­próf Mats­fer­ils séu stöðluð. „Efn­is­inni­hald, mats­regl­ur og regl­ur um fyr­ir­lögn próf­anna eru fyr­ir fram ákveðin,“ seg­ir hún og bæt­ir við að fyr­ir­lögn verði sveigj­an­legri en í til­felli gömlu sam­ræmdu próf­anna. Þannig verði miðað við prófa­glugga, ekki ákveðinn dag.

„Grunn­skól­ar eru skyldug­ir til þess að leggja stöðu- og fram­vindu­próf í lesskiln­ingi og stærðfræði fyr­ir í 4., 6. og 9. bekk. Að öðru leyti er notk­un stöðu- og fram­vindu­prófa val­frjáls. Skól­ar geta því lagt prófið fyr­ir oft­ar, ef þeir kjósa það. Mats­fer­ill­inn er því sam­ræmd­ur mæli­kv­arði á stöðu nem­enda í grunn­skóla í anda PISA-próf­anna, þ.e. hann próf­ar ekki ákveðið efni sem sett er fyr­ir eins og gert var í gömlu sam­ræmdu próf­un­um, held­ur met­ur getu nem­enda út frá prófa­banka,“ bæt­ir hún við.

Ásthild­ur Lóa Þórs­dótt­ir, þáver­andi mennta­málaráðherra, lagði fram frum­varp í fe­brú­ar um að Mats­fer­ill­inn yrði tek­inn í notk­un. Lilja fagn­ar því að Mats­fer­ill­inn sé loks­ins að kom­ast til fram­kvæmda.

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert