Ítölsku skemmtiferðaskipi sem var á leið til Reykjavíkur var snúið við fyrr í dag vegna vinds.
Skipið, Costa Favolosa, var á leið frá Akureyri en var snúið við áður en það var komið inn í Viðeyjarsund.
Að sögn Gunnars Tryggvasonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna, var skipinu snúið við eftir að vindhviða fór yfir viðráðanleg viðmið.
Dráttarbáturinn Magni var þá sendur á vettvang með hafsögumann og beið svo í höfninni ef þörf væri á aðstoð.
„Það var að gera atlögu að Sundahöfninni en þegar vindhviða fór yfir viðmið hjá okkur þá ákváðu hafsögumaðurinn og skipstjóri í sameiningu að snúa skipinu við og bíða af sér næstu klukkutíma,“ segir Gunnar í samtali við mbl.is.
Sem stendur er skipið nú fyrir utan Kollafjörð og siglir þar í hringi.
„Það fer best um farþegana þegar skipið er á ferð,“ segir Gunnar og nefnir að stefnt sé á að sigla inn í höfn í kvöld.