Bergur Fáfnir Bjarnason er dúx Flensborgarskólans, með einkunnina 9,74. Hann var þó ekki viðstaddur útskriftarathöfn skólans þar sem hann var að keppa í sundi á Smáþjóðaleikunum í Andorra. Síðar í sumar keppir Bergur í alþjóðlegu ólympíukeppninni í efnafræði í Dúbaí.
Útskriftarathöfnin fór fram á sama tíma og Bergur keppti fyrir hönd Íslands á Smáþjóðaleikunum í Andorra, þar sem hann tryggði sér bronsverðlaun í 200 metra baksundi.
„Þegar útskriftin var í gangi átti ég svolítið erfitt með þetta. Eftir að ég komst á verðlaunapall gat ég sætt mig við fjarveruna,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Bergur hefur æft sund frá unga aldri. Hann segir skipulag lykilatriði í því að samræma sundiðkun og námið. Bergur keppir síðar í mánuðinum á sumarmeistaramóti Íslands í sundi.
Fyrir framúrskarandi árangur í námi hlaut Bergur Menntaverðlaun Háskóla Íslands, styrk frá Rio Tinto auk fjölda annarra verðlauna.
Þá hefur Bergur sinnt jafningjakennslu í stærðfræði og raungreinum innan Flensborgarskólans sem hefur reynst samnemendum hans vel.
Raungreinar eiga vel við Berg en hann hefur keppt í Landskeppni í efnafræði tvívegis. Bergur lenti í áttunda sæti í Landskeppninni í fyrra en var staðráðinn í að gera betur í ár, sem honum tókst.
„Keppnisskapið er það mikið að ég tók aftur þátt og í þetta sinn vann ég og þar með tryggði ég mér sæti í ólympíuliðinu í efnafræði.“
Síðar í sumar tekur hann þátt í ólympíukeppni í efnafræði sem fram fer í Dúbaí. Þar keppir Bergur fyrir Íslands hönd ásamt fjórum öðrum.