Takmarkaðar upplýsingar um herþjónustu Íslendinga

Orrustuþota norska flughersins, af gerðinni F-35, tekur á loft á …
Orrustuþota norska flughersins, af gerðinni F-35, tekur á loft á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ut­an­rík­is­ráðuneytið hef­ur tak­markaðar upp­lýs­ing­ar um þátt­töku ís­lenskra rík­is­borg­ara í herþjón­ustu er­lend­is.

Þetta kem­ur fram í svari ráðuneyt­is­ins við fyr­ir­spurn Bryn­dís­ar Har­alds­dótt­ur, þing­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins, sem óskaði eft­ir upp­lýs­ing­um um fjölda Íslend­inga sem hafa sótt herþjálf­un og sinnt herþjón­ustu á ár­un­um 2010 til 2025.

Sam­kvæmt svari ráðuneyt­is­ins liggja ekki fyr­ir upp­lýs­ing­ar um fjölda ís­lenskra rík­is­borg­ara sem hafa tekið þátt í herþjálf­un er­lend­is á tíma­bil­inu.

Óvissa varðandi Íslend­inga í átök­um

Um­sækj­end­ur senda gögn­in til ráðuneyt­is­ins sem hef­ur heim­ild til að gera at­huga­semd­ir og áfram­send­ir þau til norska sendi­ráðsins. Því er það norski her­skól­inn sem ann­ast áfram­hald­andi sam­skipti og tek­ur ákvörðun um skóla­vist, án frek­ari aðkomu ís­lenska ráðuneyt­is­ins.

Þá liggja held­ur eng­ar upp­lýs­ing­ar fyr­ir um það hversu marg­ir ís­lensk­ir rík­is­borg­ar­ar hafa tekið þátt í herþjón­ustu á virk­um átaka­svæðum á um­ræddu tíma­bili.

Ut­an­rík­is­ráðuneytið held­ur ekki utan um slík­ar upp­lýs­ing­ar og hef­ur því ekki yf­ir­sýn varðandi hvort og hvar Íslend­ing­ar kunna að hafa tekið þátt í hernaðarátök­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert