Veðrið andstyggð og fuglum hætt

„Ein er upp til fjalla, / yli húsa fjær,“ orti …
„Ein er upp til fjalla, / yli húsa fjær,“ orti listaskáldið um fagran fugl. Ljósmynd/Pétur Alan Guðmundsson

„Rjúp­an mun pluma sig þrátt fyr­ir hret, en ég hef áhyggj­ur af af­drif­um mó­fugla. Þeir munu fara illa út úr þessu and­styggi­lega veðri,“ seg­ir Ólaf­ur K. Niel­sen fugla­fræðing­ur. Hann var í gær á Skútu­stöðum við Mý­vatn þar sem var krapa­hríð og ekki hundi út sig­andi.

Hret sem nú geng­ur yfir norður­hluta lands­ins mun hafa áhrif á margt í líf­rík­inu, sbr. þær búsifjar sem urðu í hvell­in­um fyrstu vik­una í júní í fyrra. Ólaf­ur bend­ir þó á að þá hafi þykk­ur snjór legið yfir öllu landi ofan 100 m hæðarlínu. Nú sé staðan önn­ur og skárri, sam­an­ber að við Mý­vatn var í gær aðeins grátt í rót þótt slyddu­hríð væri áköf. Fyr­ir réttu ári var þar allt á kafi í snjó. Jafn­framt gera spár ráð fyr­ir að hretið vari í aðeins tvo daga en ekki í fimm daga líkt og var í fyrra.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert