Dómur vegna tilraunar til manndráps mildaður

Landsréttur taldi að sakaferill mannsins ætti ekki að hafa teljandi …
Landsréttur taldi að sakaferill mannsins ætti ekki að hafa teljandi áhrif vegna þess að langur tími var liðinn frá þeim brotum sem maðurinn hafði áður verið dæmdur fyrir. Morgunblaðið/Eggert

Lands­rétt­ur dæmdi fyrr í dag Örn Geir­dal Stein­ólfs­son í fimm ára fang­elsi fyr­ir til­raun til mann­dráps. Örn hafði áður verið dæmd­ur í sex ára fang­elsi í héraðsdómi og hef­ur því Lands­rétt­ur mildað dóm hans.

Erni var einnig gert að greiða fórn­ar­lambi árás­ar­inn­ar 2,2 millj­ón­ir í miska­bæt­ur og fjórðung af áfrýj­un­ar­kostnaði. 

At­vikið sem um ræðir átti sér stað í janú­ar í fyrra. Örn stakk þá mann á þrítugs­aldri tví­veg­is á gatna­mót­um Hring­braut­ar og Hofs­valla­götu. 

Árás­in átti sér stað eft­ir að Örn hafði verið á gangi á miðri götu og fórn­ar­lamb árás­ar­inn­ar hafði bent hon­um á það að það væri hættu­legt. Örn brást við með því að stinga mann­inn tví­veg­is. 

Maður­inn hlaut opin sár á brjóst­kassa og á vinstri öxl vegna árás­ar­inn­ar.  

Hend­ing ein að ekki fór verr

Örn bar fyr­ir sig minn­is­leysi bæði í héraðsdómi og í Lands­rétti. Hann bar einnig fyr­ir sig neyðar­vörn en á það var ekki fall­ist enda var talið ljóst að hann hefði veist að mann­in­um og að ásetn­ing­ur hans hafi verið sterk­ur og ein­beitt­ur. 

Í dómi héraðsdóms er tekið fram að hend­ing ein hafi ráðið því að ekki fór verr vegna stung­unn­ar í brjóst­kass­ann. 

Áverk­ar manns­ins á brjóst­kassa voru tald­ir lífs­hættu­leg­ir og hlaut hann meðal ann­ars loft­brjóst. 

Langt frá fyrri brot­um

Eins og áður seg­ir var dóm­ur­inn mildaður í Lands­rétti úr sex árum í fimm. 

Héraðsdóm­ur hafði litið til þess í dómi sín­um að Örn átti saka­fer­il að baki. Lands­rétt­ur taldi hins veg­ar að saka­fer­ill manns­ins ætti ekki að hafa telj­andi áhrif vegna þess að lang­ur tími var liðinn frá þeim brot­um sem maður­inn hafði áður verið dæmd­ur fyr­ir. 

Lands­rétt­ur taldi því rétt að milda dóm­inn um eitt ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert