Gæti orðið skylda að taka við reiðufé

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Karítas

Það er mik­il­væg þjón­usta við al­menn­ing að hægt sé að nota reiðufé. Því legg­ur seðlabanka­stjóri til að Alþingi styrki laga­lega heim­ild Seðlabank­ans til þess að skylda aðila til þess að taka við reiðufé og seg­ir bank­ann skoða að nýta rétt sinn til að skylda þá sem selja nauðsynja­vör­ur til að taka við reiðufé.

Þetta er meðal þess sem Ásgeir Jóns­son seðlabanka­stjóri sagði í svari sínu við fyr­ir­spurn Pawel Bartoszek, þing­manns Viðreisn­ar, á opn­um fundi efna­hags- og viðskipta­nefnd­ar Alþing­is í dag. Fund­ar­efnið var skýrsla fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd­ar Seðlabanka Íslands til Alþing­is fyr­ir árið 2024. Auk Ásgeirs var Björk Sig­ur­gísla­dótt­ir, vara­seðlabanka­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits, einnig gest­ur á fund­in­um.

Pawel sagði tvö sjón­ar­horn tak­ast á varðandi notk­un al­menn­ings á reiðufé. Ann­ars veg­ar, með hliðsjón af fjár­mála­eft­ir­liti, væri reiðufé illa rekj­an­legt. Hins veg­ar hefði seðlabanka­stjóri mælt með því ný­lega að fólk ætti bunka af reiðufé heima til von­ar og vara.

Spurði hann hvernig þessi tvö sjón­ar­mið tækj­ust á og hvort Seðlabank­inn væri til­bú­inn til þess að stór hluti al­menn­ings færi út í hraðbanka og tæki út mikið magn reiðufjár í dag. Spurði hann einnig hvort hræðsla væri við að aðilar sem „vilja af ýms­um ástæðum nota reiðufé í sín­um dag­lega rekstri“ gætu nú vísað til þess að hafa nokkr­ar millj­ón­ir heima í reiðufé til að safna sér í vara­sjóð, þegar ástæðan væri kannski önn­ur.

„Gríðarlega mikl­ar varn­ir gegn pen­ingaþvætti“

Í svari sínu sagði Ásgeir mikla hreyf­ingu hafa verið fyr­ir um tíu árum, þá hafi verið reynt að taka út reiðufé vegna svarts hag­kerf­is. Þetta hafi þó aldrei verið skoðun Seðlabank­ans.

Sagði hann Seðlabank­ann hafa tekið upp gríðarlega mikl­ar varn­ir gegn pen­ingaþvætti. Árið 2019 hefði átt sér stað ákveðin vakn­ing „fyr­ir okk­ur að gera eitt­hvað í mál­inu“ sök­um þess að Ísland hefði verið „grál­istað“ það árið.

„Al­mennt séð er ís­lenska krón­an ekki góð til þess að þvo pen­inga, fyr­ir er­lenda aðila. Þetta er lít­ill gjald­miðill,“ sagði Ásgeir, því myndi mynt­in sjaldn­ast verða fyr­ir val­inu til þess að þvo pen­inga held­ur stærri mynt­ir eins og dal­ir eða evr­ur.

Þrátt fyr­ir að svart hag­kerfi sé til staðar á Íslandi tel­ur Ásgeir þær áhyggj­ur ekki eiga að hafa for­gang, „eins og ég sé það þá erum við búin að ná utan um allt kerfið“.

„Til þess að vera í svarta hag­kerf­inu þarftu al­veg að forðast öll sam­skipti við banka eða aðrar stofn­an­ir,“ sagði hann. Hann telji ís­lensk­an markað hafa náð mikl­um ár­angri varðandi þetta.

Eitt rekstr­ar­fé­lag sjái um hraðbank­ana

Sem seðlabanka­stjóra finnst Ásgeiri sniðugt að fólki hafi gjald­miðil­inn í hönd­un­um.

„Það var nú ein­hver fjár­málaráðgjafi sem ráðlagði það að taka kred­it­kortið, setja það í glas fullt af vatni og setja það í frysti­kistu og síðan nota bara reiðufé, og ef þú feng­ir löng­un til þess að kaupa eitt­hvað þá þyrft­irðu að taka glasið upp og bíða eft­ir að það þiðnaði,“ sagði Ásgeir, það sé hans mat að notk­un reiðufjár gefi fólki jarðsam­band varðandi pen­inga.

Benti Pawel þá á að fjöl­marg­ir staðir taki ekki leng­ur við reiðufé og spurði um leið hvort prentuðum seðlum hefði verið fjölgað, í ljósi hvatn­ing­ar seðlabanka­stjóra um að fólk eigi að hafa reiðufé heima fyr­ir ör­ygg­is­sak­ir.

Sagði Ásgeir að síðan hann tók við stöðu seðlabanka­stjóra hefði hann látið prenta tölu­vert af seðlum, „við gef­um ekki upp hversu mikið en við erum með al­veg nóg“.

Þá vilji hann koma í fram­kvæmd einu rekstr­ar­fé­lagi sem sjái um alla hraðbanka, í stað þess að hver banki sé með sinn eig­in. „Það sé þá hugsað um hvar þeir eru, strategískt. Þannig að það sé auðvelt að dreifa seðlum“.

Mik­il­væg þjón­usta að geta notað reiðufé

Að lok­um sagði Ásgeir það mat Seðlabank­ans að hann hafi ekki laga­lega heim­ild til þess að skylda aðila til þess að taka við reiðufé.

„Það má jafn­vel velta fyr­ir sér hvort Alþingi hafi áhuga á því að styrkja við þær heim­ild­ir sem við höf­um í því sam­hengi.“

Aft­ur á móti hafi bank­inn rétt á að setja regl­ur varðandi notk­un reiðufjár sem myndu skylda aðila með nauðsynja­vör­ur, til dæm­is mat­vöru­versl­an­ir og apó­tek, til að taka við því. Þetta gæti verið til skoðunar í haust.

Hann telji það mik­il­væga þjón­ustu fyr­ir fólk að geta notað reiðufé.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert