Ekkert lát virðist vera á vinsældum rithöfundarins Ragnars Jónassonar í Þýskalandi. Nýjasta bók hans, Hulda, kom út þar í landi á dögunum og stökk beint í þriðja sætið á metsölulista Spiegel sem birtur var í gær.
Hulda er sem kunnugt er fjórða bókin um Huldu Hermannsdóttur. Upphaflega áttu bækurnar aðeins að verða þrjár en Ragnar bætti við eins konar forleik eftir að fengið innblástur við að fylgjast með gerð sjónvarpsþátta um Huldu.
Hinar bækurnar þrjár, Dimma, Drungi og Mistur, komu út með tveggja mánaða millibili í Þýskalandi árið 2020. Um tíma voru allar þrjár í sömu vikunni á lista yfir tíu mest seldu bækurnar þar í landi. Mistur fór alla leið í efsta sæti listans, Dimma í annað og Drungi í það þriðja. Alls voru þessar þrjár bækur samanlagt á metsölulista Spiegel í yfir áttatíu vikur.
Hulda kom út á íslensku síðasta haust. Fyrsta erlenda útgáfan var í Danmörku fyrr á þessu ári en þar fékk bókin fimm hjörtu af sex mögulegum í Politiken og var lýst sem glæsilegri ráðgátu í íslenskum afdal.
Í dómnum sagði síðan: „Ragnar Jónasson kemur með vel skrifaðan og æsispennandi krimma um hina fálátu og hugrökku lögreglukonu Huldu Hermannsdóttur.“
Bækur Ragnars hafa selst í meira en fimm milljónum eintaka á 35 tungumálum.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.