Samkvæmt starfsáætlun Alþingis á þinginu að ljúka þann 13. júní en óvíst er hvort það takist. Ríkisstjórnin er með talsverðan fjölda mála sem þarf að afgreiða fyrir þinglok.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis og fyrrverandi umhverfisráðherra, gat lítið tjáð sig um stöðu mála á Alþingi. „Staðan er eins og hún er og við erum enn að vinna samkvæmt starfsáætlun þingsins. Starfið í þingnefndum hefur gengið vel en mörg mál bíða annarrar umræðu.“
Þingfundur er á áætlun þingsins í dag og á morgun og telur Þórunn að vel sé hægt að nýta þann tíma til að klára ákveðin mál. „Það kemur bara í ljós í lok vikunnar hvernig þurfi að bregðast við ef kemur til frestunar þingloka.“
Sumarfrí þingmanna og starfsmanna Alþingis standa yfir í júlímánuði og fram í miðjan ágúst. Þórunn segir að ef fresta þurfi þinglokum þurfi starfsmenn að bregðast við því og ákveða hvernig þeir vilji ráðstafa fríum sínum. Það geti því haft mikil áhrif á starfsemi þingsins ef fresta þurfi þinglokum. „Það krefst bæði mannafla og utanumhalds og þá þarf að vera fólk hér á Alþingi,“ segir Þórunn.
Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Alþingis lætur af störfum þann 1. ágúst en hún hefur gegnt embættinu frá 2019. Þórunn gerir ráð fyrir að hægt verði að tilkynna um ráðningu nýs skrifstofustjóra á næstu dögum eða eftir helgi.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.