Skerðingar miklar og foreldrar í vandræðum

Miklar þjónustuskerðingar hafa verið í leikskólum Reykjanesbæjar.
Miklar þjónustuskerðingar hafa verið í leikskólum Reykjanesbæjar. Ljósmynd/Colourbox

Odd­viti sjálf­stæðismanna í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæj­ar seg­ir þjón­ustu­skerðingu í leik­skól­um bæj­ar­ins tölu­verða og að hún skapi vand­ræði fyr­ir for­eldra. Þá er einnig mjög hár meðal­ald­ur barna sem hefja leik­skóla­dvöl í Reykja­nes­bæ og odd­vit­inn seg­ir meiri­hlut­ann ekki standa við gef­in lof­orð fyr­ir síðustu kosn­ing­ar. 

Sjálf­stæðis­menn, sem eru í minni­hluta, lögðu í maí fram fyr­ir­spurn um þjón­ustu­skerðingu sem varð í leik­skól­um Reykja­nes­bæj­ar vet­ur­inn 2024 – 2025.

Á fundi bæj­ar­stjórn­ar Reykja­nes­bæj­ar á þriðju­dag kom fram að þjón­usta í leik­skól­an­um Heiðarseli hefði verið skert í alls 17 skipti á tíma­bil­inu, þar af 16 skipti á haust­mánuðum 2024. Stap­aleik­skóli hef­ur í heild skert þjón­ustu í 12 skipti, þar af 9 skipti á vorönn.

Stytt­ing vinnu­vik­unn­ar og fjöldi starfs­daga spil­ar inn í

Mar­grét A. Sand­ers, odd­viti Sjálf­stæðis­flokks­ins í Reykja­nes­bæ, seg­ir í sam­tali við mbl.is að um gíf­ur­lega skerðingu sé að ræða, sér­stak­lega þegar fjöldi starfs­daga og stytt­ing vinnu­vik­unn­ar er tek­in með í reikn­ing­inn. Stytt­ing­in nem­ur 22 frí­dög­um á ári en til að bregðast við henni þurfa for­eldr­ar í bæn­um nú að skrá börn­in sín sér­stak­lega á leik­skól­ana 11 daga á ári.

Þá eru skól­arn­ir líka lokaðir yfir sum­ar­tím­ann.

„Þetta eru það mikl­ar skerðing­ar að við höf­um ein­fald­lega áhyggj­ur af því að for­eldr­ar eigi ekki svona mikið sum­ar­frí,” seg­ir Mar­grét og bend­ir á að skerðing­in hafi aðallega verið á tveim­ur leik­skól­um og hafi mik­il áhrif á for­eldra barna sem sækja þá.

For­eldr­ar eru komn­ir í vand­ræði

„For­eldr­ar eru komn­ir í mik­il vand­ræði og við erum að spyrja hvað er verið að gera, hvernig er verið að bregðast við?” seg­ir Mar­grét og bæt­ir við:

„Það er ef til vill það sem við erum mest óhress með, að upp­lýs­ing­arn­ar séu ekki að ber­ast þenn­an við erum ekki að sjá hvaða for­varn­ir eru til staðar.”

Hún nefn­ir að mögu­leg lausn gæti verið að koma á ein­hvers kon­ar flakk­ara- eða bakvakta­fyr­ir­komu­lagi þar sem hægt væri að kalla fólk inn ef t.d. veik­indi koma upp.

„Við erum að leggja áherslu á að það séu gerðar raun­hæf­ar áætlan­ir þannig að fjöl­skyld­ur séu ekki að búa við að sum­ar­fríið sé búið þegar kem­ur að sum­ar­fríi,” seg­ir Mar­grét.

Brost­in lof­orð

Í vik­unni fjallaði mbl.is um að börn í Reykja­nes­bæ séu al­mennt á ald­urs­bil­inu 20 til 29 mánaða þegar þau fá að hefja leik­skóla­dvöl, en sá ald­ur er hærri en í öðrum sveita­fé­lög­um af svipaðri stærðargráðu.

Spurð hvernig þessi staða blas­ir við henni bend­ir Mar­grét á að í aðdrag­anda síðustu tveggja kosn­inga í sveit­ar­fé­lag­inu hafi nú­ver­andi meiri­hluti lofað því að börn verði tek­in inn við 18 mánaða ald­ur en að það sé ekki að raun­ger­ast. 

Meiri­hluti bæj­ar­stjórn­ar sam­an­stend­ur af Sam­fylk­ing­unni, Fram­sókn og Beinni leið. 

Meiri­hlut­inn hef­ur borið fyr­ir sig aukn­ingu barna frá Grinda­vík í sveit­ar­fé­lag­inu en Mar­grét seg­ir þau rök ekki stand­ast því að vand­inn hafi verið kom­inn upp löngu áður en jarðhrær­ing­arn­ar í Grinda­vík brut­ust út.

Þá bæt­ir Mar­grét við: „Það er verið að tala um að tveir leik­skól­ar séu að rísa en það er verið að loka ein­um út af myglu. Svo þurf­um við líka að spyrja okk­ur: ef að við get­um ekki mannað þessa leik­skóla sem fyr­ir eru, hvernig á að bregðast við þegar þeim fjölg­ar?”

Margrét Sanders oddviti sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ er gagnrýnin á stöðu …
Mar­grét Sand­ers odd­viti sjálf­stæðismanna í Reykja­nes­bæ er gagn­rýn­in á stöðu leik­skóla­mála í bæn­um. mbl.is/Þ​​órður Arn­ar Þórðar­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert