Staðan ekki viðunandi í dreifbýlinu

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að staðan er ekki viðunandi.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að staðan er ekki viðunandi. mbl.is/Eggert

Um 83% sjúkra­flutn­inga­manna sem starfa í bakvakta­kerfi í dreifðari byggðum lands­ins telja sig ekki fá nægi­lega sí- og end­ur­mennt­un til að viðhalda hæfni í starfi sam­kvæmt verk­efni sem unnið var af nem­end­um í Há­skól­an­um á Bif­röst.

„Skýr­ing­in get­ur þá verið sú að þetta fólk sinni öðrum störf­um og þá jafn­vel í fullu starfi ann­ars staðar. Það hleyp­ur í út­köll þegar á þarf að halda. Erfitt er að gera kröf­ur til fólks um að sinna end­ur­mennt­un þess utan í frí­tíma sín­um,“ seg­ir Bjarni Ingimars­son, einn nem­end­anna sem unnu að verk­efn­inu, en hann er jafn­framt formaður Lands­sam­bands slökkviliðs- og sjúkra­flutn­inga­manna. Þekk­ir hann því starfið afar vel.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert