Umfangsmesta utanvegarhlaup landsins, Hengill Ultra, hófst rétt í þessu í 13. sinn en keppendur sem stefna á að hlaupa 106 km um Hengilssvæðið voru ræstir af stað klukkan 18.
Mikil eftirvænting var í loftinu við rásmarkið en 21 vaskur hlaupari ætlar sér að hlaupa kílómetrana 106 að þessu sinni.
Að nógu er að huga fyrir hlaup sem þetta en samkvæmt skipuleggjendum keppninnar er ráðgert að hlaupið verði í alla nótt og að fyrstu keppendur komi í mark einhvern tímann fyrir hádegi á morgun.
Að sögn skipuleggjanda er veðurspáin með besta móti sem stendur, en aðstæður geta þó breyst með skömmum fyrirvara enda er hlaupaleiðin mjög fjölbreytt. Frá miðbæ Hveragerðis liggur leiðin inn að Hengli, yfir fjallgarðinn, niður Sleggjubeinsskarð og þaðan til baka.
Í ár eru erlendir keppendur í fyrsta sinn í meirihluta en þeir koma frá átta löndum, meðal annars frá Grænlandi, Frakklandi og Svíþjóð.
Í fyrramálið leggja svo 109 hlauparar af stað í 53 kílómetra hlaup og í kjölfarið verður ræst í styttri vegalengdir.