Hans Petersen lokar

Ljósmynd/Hans Petersen

Ljós­mynda­versl­un­in Hans Peter­sen mun loka frá og með 14. júní, en saga versl­un­ar­inn­ar nær aft­ur til árs­ins 1907.

Eft­ir langa og dýr­mæta veg­ferð höf­um við tekið þá ákvörðun að hætta versl­un­ar­rekstri á næstu dög­um og snúa okk­ur að nýj­um og óskyld­um rekstri,“ seg­ir í Face­book-færslu versl­un­ar­inn­ar sem er staðsett á Grens­ás­vegi 12. 

Sam­komu­lag hef­ur náðst við Fotom­ax um að taka yfir ljós­myndaþjón­ustu Hans Peter­sen. 

„Það er bæði erfitt og til­finn­ingaþrungið að kveðja þenn­an kafla, sem hef­ur verið okk­ur svo mik­il­væg­ur. Við lít­um til baka með stolti og djúpu þakk­læti fyr­ir þann ómet­an­lega stuðning og traust sem þið hafið sýnt okk­ur í gegn­um árin,“ seg­ir í færsl­unni. 

Fyrsta versl­un Hans Peter­sen var opnuð í Banka­stræti árið 1907 og er versl­un­in því 118 ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert