Hulda Elma og Felix fyrst í mark

Sigurvegararnir Hulda Elma Eysteinsdóttir og Felix Starker.
Sigurvegararnir Hulda Elma Eysteinsdóttir og Felix Starker. Samsett mynd/Hengill Ultra

Þjóðverj­inn Fel­ix Star­ker kom fyrst­ur í mark í karla­flokki Hengils Ultra á tím­an­um 11:41:58. Hulda Elma Ey­steins­dótt­ir er sig­ur­veg­ari kvenna á tím­an­um 13:55:11. Talið er að bæði Fel­ix og Hulda hafi sett braut­ar­met. 

Fel­ix kom í mark rétt fyr­ir klukk­an sex í morg­un og seg­ir í Face­book-færslu að hann sé við góða heilsu. Seg­ir að kalt hafi verið í braut­inni í nótt en milt veður. 

Ragn­heiður Svein­björns­dótt­ir var meðal þeirra sem af­hendi Huldu Elmu verðlaun­in en Ragn­heiður átti fyrra braut­ar­metið.

Fyrsta holl Heng­ill Ultra-hlaups­ins var ræst klukk­an 18 í Hvera­gerði …
Fyrsta holl Heng­ill Ultra-hlaups­ins var ræst klukk­an 18 í Hvera­gerði í gær­kvöldi. mbl.is/​Karítas

Gunn­ar Lár­us Karls­son var fyrst­ur ís­lenskra karla í mark en hann var tæpri mín­útu á und­an Huldu Elmu, eða á tím­an­um 13:54:21, og var fjórði í karla­flokki. 

Er þetta er ritað höfðu 10 af þeim 19 sem hófu keppni kom­ist í mark. 

111 kepp­end­ur hlupu af stað í 53km hlaupi Hengils Ultra hlupu klukk­an 8 í morg­un. 

 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert