Það liggur í augum uppi að hægara sé sagt en gert að hlaupa 106 kílómetra í einni atrennu. Það kann þó að koma á óvart að hve mörgu þarf að huga.
Síðustu daga hafa keppendur í Hengil Ultra-hlaupinu, sem ræst var í gærkvöldi, legið yfir veðurspám og skipulagt hvernig þeir muni koma um einu kílói af sykri ofan í sig meðan á hlaupinu stendur.
Fyrsta holl Hengill Ultra-hlaupsins var ræst klukkan 18 í Hveragerði en þá lögðu 21 keppandi, sem stefna á að hlaupa 106 kílómetra á Hengilsvæðinu, af stað. Hlupu þeir í alla nótt og fyrsti hlauparinn, Þjóðverjinn Felix Starker, kom fyrstur í mark í karlaflokki rétt fyrir klukkan sex í morgun, á tímanum 11:41:58.
Frá miðbæ Hveragerðis liggur leiðin inn að Hengli, yfir fjallgarðinn, niður Sleggjubeinsskarð og þaðan til baka. Þá hafa keppendur þó aðeins lokið 53 kílómetrum og leggja af stað í annan hring.
Ingvar Hjartarson er einn af þessum vösku hlaupurum sem eru nú staddir í Henglinum en mbl.is ræddi við hann rétt áður en hann hljóp af stað í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem hann hleypur 100 km í keppnishlaupi en hann hefur gert það áður á eigin vegum í góðgerðarskyni.
Ingvar segist hafa stundað markvissar æfingar fyrir hlaupið í um þrjá mánuði en spurður hvað fari í gegnum hugann rétt áður en lagt sé af stað segir hann það fyrst og fremst vera stress.
„Maður er að hugsa hvaða föt og hvaða búnað maður á að hafa með sér. Svo þarf maður að græja töskuna sem maður ætlar að láta skilja eftir, bæði í Sleggjuskarði og hér, hafa allt klárt fyrir nóttina,” segir Ingvar og bætir við:
„Ég er með alveg ágætisvesti með miklum búnaði. Það er mikill skyldubúnaður og kröfur í hlaupinu. Ég er með nóg af orku, vökva, stafi, regnbuxur og regnjakka.”
Aðspurður segir Ingvar að hann búist við að stærsta áskorunin muni vera að næra sig almennilega og halda maganum góðum.
„Markmiðið er að borða svona kíló af sykri á einhverjum þrettán tímum eða svo. Það verður alveg áskorun að borða það allt og halda því niðri.”
En hvernig kemur maður kílói af sykri niður?
„Maður þarf náttúrulega að hafa fjölbreytta næringu, eins fjölbreytta og sykur verður. Þannig maður þarf að finna eitthvað sem mann langar í. Ef þetta er ekki gott á bragðið hættirðu að sækjast í það,” segir Ingvar og bætir við að auk orkugels sé hann með snakk, saltbíla, fjölbreytt úrval af orkustykkjum og þurrkað mangó meðferðis.“
Hulda Elma Eysteinsdóttir og Andri Teitsson eru hlaupavinir frá Akureyri en þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau hlaupa 100 kílómetra.
Þegar blaðamaður ræddi við Huldu og Andra rétt fyrir upphaf hlaupsins sögðust þau einfaldlega vilja komast á stað sem fyrst.
Spurð hvað væri þeim efst í huga þessa stundina nefndi Andri veðrið. „Maður er svolítið stressaður yfir veðrinu, hvort það yrði mikill vindur og kuldi á leiðinni.“
Sem fyrr segir var hlaupið í gegnum nóttina en spurð hvernig maður undirbúi líkamann fyrir slíka þolraun segir Hulda:
„Maður reynir að hvílast vel og við erum búin að hlaupa örlítið minna í vikunni en við erum vön að gera. Við nærumst vel og sofum vel.“
En það eru ekki bara hlaupararnir sjálfir sem hafa staðið í ströngum undirbúningi. Það er sömuleiðis mikil vinna að halda utan um langhlaup sem þetta.
„Nú erum við aðallega að huga að öryggisatriðunum, hér er verið að fara yfir búnaðinn hjá hverjum og einum, að menn séu með allan þann búnað sem við krefjumst sem er mun meiri búnaður en veðrið gefur til kynna þessa stundina,” segir Þórir Erlingsson, forseti mótstjórnar, en blaðamaður ræddi við hann á brautarfundi með keppendum rétt áður en hlaupið var ræst.
Hann bætir við að miklar búnaðarkröfur séu tilkomnar vegna þess hve skótt veður geti skipast.
„Við vitum aldrei hvernig þetta breytist og það breytist mjög hratt. Hlaupið liggur í raun í gegnum þrjú veðurbelti, við erum hérna í Hveragerði, svo er það á Ölkelduhálsi þar sem er aðeins kaldara og verra veður og síðan er farið alla leið upp á Skeggja og þar getur verið allt annað veður en við vitum af hérna niðri.”
Þrátt fyrir þetta segir Þórir að veðurspáin sé mjög góð þessa stundina. Örlítill vindur er á einum kafla brautarinnar en fyrir utan það er hún þurr og aðstæður góðar.