Rósa Guðbjartsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir aðkomu ríkisins að takmörkuðu framboði hjúkrunarrýma. „Það stefnir í neyðarástand í þessum málum,“ segir hún um höfnun tilboða frá einkaaðilum sem buðust til að taka þátt í uppbyggingu hjúkrunarrýma.
Rósa gagnrýnir aðkomu ríkisstjórnarinnar að uppbyggingu hjúkrunarrýma og segir ljóst að fyrir liggi óútskýrð stefnubreyting frá fyrri ríkisstjórn.
„Fyrri ríkisstjórn og heilbrigðisráðherra höfðu áttað sig á þörfinni og fjárhæðunum sem um ræðir og undirbúið markaðskönnun til að auglýsa eftir einkaaðilum um samstarf við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Auglýst var í lok síðasta árs eftir áhugasömum aðilum sem vildu leggja til fasteignir til leigu,“ sagði Rósa í ræðu sinni á Alþingi í gær.
Samkvæmt ræðu hennar og í samtali við mbl.is lýsir hún yfir vonbrigðum með að engar skýringar hafi fylgt því þegar öllum tilboðum einkaaðila, í markaðskönnun um byggingu hjúkrunarrýma, var hafnað í liðinni viku.
Hún segir að það skjóti skökku við að aðilar, sem höfðu lagt mikla vinnu í tillögur sínar og voru komnir langt með hönnun og jafnvel fjármögnun, fái einfalt nei eftir margra mánaða bið og það án nokkurra skýringa.
„Um 700 manns eru á biðlista eftir hjúkrunarrýmum í landinu. Samkvæmt þarfagreiningu má búast við að á næsta ári verði hátt í 1.000 manns á biðlista,“ sagði Rósa í ræðu sinni í gær.
Hún tekur jafnframt fram að meðalbyggingarkostnaður hvers rýmis nemur um 65 milljónum króna og því þurfi að fjárfesta fyrir 230 milljarða króna á næstu 15 árum til að mæta þörfinni.
„Við verðum að nýta krafta einkaaðila, lífeyrissjóða og félagasamtaka,“ segir hún og vísar til þess að fyrri ríkisstjórn hafi hafið undirbúning að því með þeim hætti að auglýsa eftir áhugasömum aðilum sem vildu leigja ríkinu fasteignir undir ný hjúkrunarrými.
„Samkvæmt mínum heimildum voru um tíu aðilar sem sendu inn tilboð í þessari markaðskönnun. Þeir voru með fjármagn og lóðir, tilbúnir að hefja framkvæmdir,“ segir hún og heldur áfram.
„Einhver orðaði það þannig við mig að menn upplifa að þeir hafi einfaldlega verið hafðir að fífli.“
Rósa segir viðbrögðin frá nýrri ríkisstjórn vera í andstöðu við þau áform sem fyrri ráðherra málaflokksins hafði lagt fram og segir að stefnubreytingin kalli á skýringar, sérstaklega í ljósi yfirlýsinga félagsmálaráðherra um vilja til að fjölga hjúkrunarrýmum.