Þorgerður farin að finna til þreytu?

Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality
    Skip in 5...

    Sam­fé­lags­miðlar ís­lensks stjórn­mála­fólks eru alltaf und­ir smá­sjá og því sem þar fer fram gert skil með reglu­bundn­um og skemmti­leg­um hætti í Spurs­mál­um. Yf­ir­ferðina má sjá í meðfylgj­andi mynd­skeiði eða í rituðu máli hér að neðan.

    Útgerðar­menn aðeins sæt­ari er sjó­menn

    Sjó­mannadag­ur­inn var hald­inn hátíðleg­ur um allt land síðastliðinn sunnu­dag enda er það það minnsta sem þjóðin get­ur gert að heiðra hetj­ur hafs­ins einu sinni á ári. Það er sko sjó­mönn­um að þakka að lands­menn lifa við alls­nægt­ir. Höf­um það al­veg á hreinu. Við erum nátt­úru­lega bara að fagna því, við litlu mergsug­urn­ar. Við vær­um auðvitað ekk­ert að halda sér­stak­lega upp á ein­hvern dag ef við mynd­um ekk­ert græða á því, er það nokkuð?

    Æ, mér finnst samt sjó­mennsk­an eitt­hvað smá eggj­andi - eitt­hvað svo röff stöff eitt­hvað. Ég elska sjó­menn. En ég elska samt eig­in­lega út­gerðar­menn aðeins meira. Pen­ing­ar gera fólk bara eitt­hvað aðeins meira kjút. Þess vegna er ég al­gjör­lega á móti nýja veiðigjald­inu. Það eiga nefni­lega ekk­ert all­ir að geta verið gor­djöss. Það er ekk­ert jafn­spenn­andi.

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
    Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráðherra. mbl.is/​Eyþór

    Obba og Hanna Kata sam­an í messu

    Obbfríður dóms­málaráðherra heiðraði hetj­ur hafs­ins með því að skella sér í sjó­manna­messu í Dóm­kirkj­unni ásamt Hönnu Kötu sem reynd­ar nennti ekki að hafa fyr­ir því að óska sjó­mönn­um og fjöl­skyld­um þeirra til ham­ingju með dag­inn í gegn­um sam­fé­lags­miðla en hafði samt fyr­ir því að pósta sömu mynd­inni tvisvar af dætr­um sín­um sem voru að út­skrif­ast. Kannski er þetta merki um að hún sé orðin miðaldra?

    Halla Hrund naut sín á höfn­inni í Grinda­vík

    Hjarta Höllu Hrund­ar slær fyr­ir Ísland, hún er senni­lega mesti Íslend­ing­ur allra Íslend­inga, í það minnsta er hún ástríðufyllsti Íslend­ing­ur­inn. Hún elsk­ar ís­lenska hest­inn meira en allt en hún elsk­ar ekki síður fisk­inn í sjón­um við strend­ur Íslands. Eyddi hún sjó­manna­deg­in­um í Grinda­vík við ís­lensk­ustu aðstæður sem fyr­ir­finn­ast; við höfn­ina í hávaðaroki á virku eldsvæði.

    Jens Garðar sendi Sig­ur­jóni pillu

    Jenni jaxl hélt sjó­mannadag­inn hátíðleg­an heima á Eskif­irði líkt og sjá má. Svo tók hann Sig­ur­jón Þórðar­son í smá bónda­beygju í ræðustól Alþing­is líka. Það er sko ekki að ástæðulausu að hann sé kallaður Jenni jaxl.

    Stúlk­an sem star­ir á hafið

    K-Frost Jor­d­an stillti sér upp á syllu við sjó­inn - stúlk­an sem star­ir á hafið væb dauðans. Já, þarna pós­ar for­sæt­is­ráðherra bara við auðug­ustu fiski­mið jarðkringl­unn­ar. Hún seg­ir það líka í mynda­færsl­unni að þetta eig­um við bara allt sam­an, ég og þú og all­ir hinir. Af hverju hef­ur eng­inn sagt manni það fyrr? Þá myndi maður kannski keyra um göt­urn­ar á ein­hverju öðru en notaðri ryðhrúgu af bland.is og búa ann­ars staðar en í pappa­kassa í Hlíðunum. Kræst!

    Bæn­heyrða sjálf­an

    Það er ekki laust við að ég hafi fengið hland fyr­ir hjartað í vik­unni þegar ég skrollaði í gegn­um sam­fé­lags­miðlana hjá sjálfu­kóng­in­um og fann enga sjálfu bara ein­hverja grút­leiðin­lega og þurra statusa um ein­hverj­ar for­seta­kosn­ing­ar í Póllandi. Fór næst­um því að gráta en ákvað að prófa að biðja til Guðs um að Pawel myndi deila í það minnsta einni selfie. Og viti menn! Ég var bæn­heyrð!

    Nettröllið Inga Sæ­land fór fram með offorsi

    Það sprakk aug­ljós­lega aðeins á tauga­kerfi Ingu Sæ­land á dög­un­um þegar hún gjör­sam­lega missti sig og óvart allt kúlið yfir umræðunni um strand­veiðarn­ar. „Ja, det er bare veldig sprungt ner­vesystemet henn­es“ og gerðist hún bara allt í einu eitt­hvað nettröll þar sem hún drullaði yfir allt og alla á Fés­bók­arsíðu sinni. Elsku hjart­ans Inga mín, það er ekki hollt að vera svona reið. Við send­um þér sól í hjarta héðan úr Há­deg­is­mó­um og kær­leiks­knús í hús.

    Fjölga leik­skóla­pláss­um á næstu fimm árum 

    Ævin­týri borg­arstubb­anna Tinký-Vinký, Dip­sý, Lala og Pó held­ur áfram að skrifa sig og fóru þeir al­deil­is á kost­um á dög­un­um. Tvö þúsund ný leik­skóla­pláss munu líta dags­ins ljós á næstu fimm árum. Tvö þúsund! „Do you hear me?“ Sprett­hóp­ur leik­skóla­mála hef­ur samþykkt all­ar til­lög­ur um fjölg­un leik­skóla­plássa og nú munu því nýir leik­skól­ar rísa upp um alla borg á mettíma - ferl­inu flýtt með ýms­um brelli­brögðum. Ég heyri svo vel ég heyri vanda skap­ast, ég heyri svo vel ég heyri lof­orð glat­ast, ég heyri svo vel ég heyri myglu mynd­ast - heyri í raka­skemmd­um, heyri í fúa­svepp­um og sé Brákar­borg..

    Þor­gerður þreytt en þakk­lát

    Bara ef Togga Gunn hefði fengið aðeins betri og ít­ar­legri starfs­lýs­ingu með þessu blessaða ut­an­rík­is­ráðherra starfi þá hefði hún kannski ekki einu sinni þegið það. Vitið hvað það er mikið að gera eða?! Fullt sem er sko ekki einu sinni listað upp í ráðning­ar­samn­ingn­um eða neitt sko. Hún hafði ekki al­veg gert ráð fyr­ir því. En á dög­un­um leit Þor­gerður Katrín yfir far­inn veg sem ráðherra síðustu mánuði og er full þakk­læt­is yfir því að geta verið rödd þjóðar­inn­ar á alþjóðavett­vangi. Þú ert al­veg ágæt Þor­gerður..

    Nýtt íþróttalið og nýr svip­ur

    Íþróttafríkið og fót­bolta­bull­an Jón Gn­arr hef­ur loks­ins loks­ins loks­ins fundið sér lið til að halda með í ís­lensk­um íþrótt­um. Eft­ir 58 ára leit af rétta liðinu fann hann lið sem hjarta hans sagði að væri hon­um sam­boðið; Hér er nýj­asti ÍR-ing­ur­inn Jón Gn­arr. Því­lík og önn­ur eins viðbót við neðra-Breiðholtið.
    Spurn­ing með hvort nýj­asti svip­ur­inn hafi fylgt með inn­göng­unni í ÍR eða sé ein­hver Stjána Bláa stæl­ing?

    View this post on In­sta­gram

    A post shared by Jón Gn­arr (@jongn­arr)

    Nýj­asta þátt Spurs­mála má sjá í heild sinni í spil­ar­an­um hér að neðan:

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert