Þung umferð en engin stór vandamál

Mikil umferð hefur verið um Suðurlandsveginn og virðast margir vera …
Mikil umferð hefur verið um Suðurlandsveginn og virðast margir vera að kíkja í Hveragerði en þar fer Hengill Ultra-hlaupið fram um helgina. mbl.is/Jón Helgi

Ljóm­andi gott veður er á Sel­fossi í dag og um­ferðin þung inn­an­bæjar.

Þetta seg­ir Garðar Már Garðars­son, aðal­varðstjóri lög­regl­unn­ar á Suður­landi, í sam­tali við mbl.is. Um­ferðarteppa fylgi jafn­an þegar gott veður er og löng helgi.

Seg­ir hann um­ferðina hafa gengið mjög vel það sem af er helg­inni og eng­in al­var­leg slys orðið.

„Það er auðvitað al­veg ofboðsleg traffík hérna, þetta er svo mik­ill tappi hérna, þangað til að nýja brú­in kem­ur. Við von­umst til þess að það lag­ist þegar að hún er kom­in en það á eft­ir að koma í ljós,“ seg­ir Garðar.

„Ekta hvíta­sunnu­helgi“

Árni Friðleifs­son, aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn hjá um­ferðardeild lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu, seg­ir um­ferðina á leiðinni út úr bæn­um hafa verið „svona ekta hvíta­sunnu­helgi“.

„Þetta er fyrsta ferðahelg­in og það hef­ur verið þung um­ferð en eng­in stór vanda­mál.“

Mik­il um­ferð hafi verið um Suður­lands­veg­inn og virðast marg­ir vera að kíkja í Hvera­gerði en þar fer Heng­ill Ultra-hlaupið fram um helg­ina.

„Það er bjart og fal­legt og þá geng­ur oft­ast vel.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert