Í dag og á morgun er útlit fyrir fremur hæga norðlæga eða breytilega átt, 3-8 m/s.
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að skýjað og lítilsháttar rigning eða slydda verði með köflum norðaustanlands og svalt í veðri.
Hins vegar verði að mestu bjart á sunnan- og vestanverðu landinu, en líkur á skúrum síðdegis.
Hiti verður á bilinu 7 til 13 stig.