Ferðalangar fjölmenna á Hellishóla

Mynd úr safni. Glaðir gestir skemmta sér á Hellishólum um …
Mynd úr safni. Glaðir gestir skemmta sér á Hellishólum um verslunarmannahelgina. mbl.is/Björn Jóhann

Hvíta­sunnu­helg­in er í huga margra fyrsta ferðahelgi sum­ars­ins og því hef­ur verið nóg að gera á Hell­is­hól­um í Fljóts­hlíð.

Á fimmta hundrað manns dvelja á Hell­is­hól­um um helg­ina. Að sögn Víðis Jó­hanns­son­ar, eig­anda Ferðaþjón­ustu Hell­is­hóla, hef­ur helg­in gengið vel og ferðalang­ar skemmt sér á Hell­is­hól­um.

Aðsókn­ar­mesta helg­in 

Víðir tel­ur helg­ina vera þá aðsókn­ar­mestu það sem af er sumri.

Á Hell­is­hól­um stend­ur fjöl­breytt gist­ing ferðamönn­um til boða. Auk tjaldsvæðis­ins eru sum­ar­hús og hót­el sem eru nú að sögn Víðis full­bókuð út helg­ina.

Veðrið hef­ur verið með fín­asta móti í Fljóts­hlíð, á laug­ar­dag voru um og yfir tíu gráður og stefn­ir í svipað veðurfar bæði í dag og á morg­un.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert