Fleiri bæjarfélög ætla að lækka álagningu

Bæjarstjóri gerir ráð fyrir mikilli íbúafjölgun í bæjarfélaginu.
Bæjarstjóri gerir ráð fyrir mikilli íbúafjölgun í bæjarfélaginu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Bú­ast má við lækk­un á álagn­ingu fast­eigna­gjalda í Mos­fells­bæ og Reykja­nes­bæ, að sögn bæj­ar­stjóra þar. Næstu skref Fjarðabyggðar eru enn óljós.

„Bæj­ar­yf­ir­völd hafa á und­an­förn­um árum lækkað álagn­ing­una til þess að hún hækki ekki um­fram vísi­tölu neyslu­verðs. Ég reikna með að það verði tek­in svipuð nálg­un í ár og hef­ur verið tek­in á síðustu árum,“ seg­ir Regína Ástvalds­dótt­ir bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæj­ar, en bæt­ir við að eng­in loka­ákvörðun hafi verið tek­in í þess­um efn­um.

Regína bæt­ir við að mik­il upp­bygg­ing eigi sér nú stað í bæj­ar­fé­lag­inu.

„Við erum í rosa­lega stór­um skipu­lags­verk­efn­um, við erum að und­ir­búa deili­skipu­lag fyr­ir fyrsta áfanga í Blikastaðahverf­inu og þar er gert ráð fyr­ir allt að 3.500-3.700 íbú­um í þeim hluta. Síðan þegar seinni hluti hverf­is­ins er klár er gert ráð fyr­ir um 9.000 manna byggð þarna. Það er gríðarleg fjölg­un fram und­an og mikið í gangi,“ seg­ir hún.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert