Mikið að gera hjá lögreglu í nótt

mbl.is/Þorgeir

Mik­ill er­ill var hjá Lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu í nótt og gistu alls átta fanga­geymslu um sex­leytið í morg­un.

Meðal ann­ars var tölu­vert um vopna­b­urð en lög­regla var kölluð á skemmti­stað vegna ein­stak­lings sem var vopnaður. Hann reyndi að flýja lög­reglu en var hlaup­inn niður og hand­tek­inn. „Hann var sann­ar­lega vopnaður,“ seg­ir í dag­bók lög­reglu og var ein­stak­ling­ur­inn vistaður í fanga­geymslu vegna ástands. 

Þá var lög­regla kölluð til vegna ein­stak­lings sem hafði skemmt hurð þar sem hann var að reyna kom­ast inn í hús­næði. Lög­regla ræddi við mann­inn og kom þá vopnið í ljós. Málið er í rann­sókn. 

Ökumaður bif­reiðar reyndi að kom­ast und­an lög­reglu er lög­regla ætlaði að hafa af­skipti af hon­um. Hann hafði ekki er­indi til erfiðis og reyndi síðan að hlaupa und­an. Ökumaður­inn var hins veg­ar hlaup­inn uppi og hand­samaður. 

Maður­inn var með fíkni­efni og pen­inga meðferðis og er grunaður um sölu og dreif­ingu fíkni­efna. Þá var hann einnig vopnaður hnífi og á von á kæru vegna þess. 

Truflaði störf lög­reglu

Ein­stak­ling­ur var hand­tek­inn fyr­ir að trufla störf lög­reglu í miðbæn­um. Lög­reglu­menn voru að störf­um fyr­ir utan skemmti­stað er maður­inn fór að at­ast í dyra­vörðum og gest­um staðar­ins.

Í dag­bók lög­reglu seg­ir að maður­inn fékk tæki­færi til þess að fara af vett­vangi og láta af hegðun sinni. Hann varð ekki við því eft­ir ít­rekuð fyr­ir­mæli og var hand­tek­inn. 

Á lög­reglu­stöð var aft­ur reynt að tala um fyr­ir mann­in­um en án ár­ang­urs og var hann því vistaður í fanga­klefa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert