Derhúfurnar „misheppnað grín“

Húfurnar hafa verið teknar úr sölu.
Húfurnar hafa verið teknar úr sölu. Ljósmynd/Landsbjörg

Björg­un­ar­sveit­in Þor­björn í Grinda­vík seg­ir der­húf­ur sem sveit­in hafði til sölu þar sem á stóð „Make Grinda­vík Great Again“ hafa verið mis­heppnað grín. Húf­urn­ar hafa verið tekn­ar úr sölu.

Þor­björn lét gera der­húf­urn­arn­ar í stíl við „Make America Great Again“-der­húf­ur Don­alds Trumps Banda­ríkja­for­seta, þar sem vísað er í slag­orð for­set­ans í for­seta­bar­áttu hans sem þýðist sem „Ger­um Banda­rík­in frá­bær aft­ur“.

„Ger­um Grinda­vík frá­bæra aft­ur“ der­húf­ur Þor­bjarn­ar lét sveit­in gera fyr­ir sig fyr­ir landsþing Lands­bjarg­ar þar sem full­trú­ar sveit­ar­inn­ar höfðu um­rædd­ar der­húf­ur á höfði til gam­ans í Grill­veislu í Hvíta hús­inu á Sel­fossi, að því er seg­ir í yf­ir­lýs­ingu sveit­ar­inn­ar í kvöld.

Upp­runa­lega voru fram­leidd­ar 25 der­húf­ur og kom í ljós að færri fengu húf­ur en vildu. Eft­ir landsþingið voru pantaðar 100 húf­ur í viðbót og var megnið selt fé­lags­mönn­um.

Í kjöl­farið var ákveðið að selja af­gang­inn á íbú­asíðu Grind­vík­inga á Face­book en stuttu síðar voru þær tekn­ar úr sölu og var sveit­in gagn­rýnd fyr­ir uppá­tækið.

Ekki til stuðnings Banda­ríkja­for­seta

„Hér er aug­ljós­lega um mis­heppnað grín að ræða sem þótti gott í þröng­um hópi. All­ir vita hver staðan er í Grinda­vík þessa dag­ana og það hef­ur þótt gott að hafa húm­or fyr­ir því grafal­var­lega ástandi sem þar rík­ir,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ingu Þor­bjarn­ar.

Seg­ir þar að der­húf­urn­ar séu alls ekki gerðar til að styðja við Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta eða þau mál sem hann stend­ur fyr­ir. 

Það hafi ekki verið til­gang­ur­inn með uppá­tæk­inu að valda ólgu né gera sveit­ina um­deilda vegna stjórn­mála á er­lendri grundu. Stjórn­mál séu ekki hluti af starfi björg­un­ar­sveita.

„Við, björg­un­ar­sveitar­fólk í Grinda­vík, hörm­um það að það sem við héld­um að væri sak­laust grín hafi komið illa við fólk og valdið þess­ari hræðilegu umræðu í okk­ar garð í dag. Húf­urn­ar eru ekki leng­ur til sölu og verða aldrei aft­ur til sölu hjá okk­ur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert