Malbikað á nokkrum stöðum annað kvöld

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og …
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stefnt er á mal­bik­un­ar­fram­kvæmd­ir á þriðju­dags­kvöld ef veður leyf­ir á nokkr­um stöðum á Reykja­nes­braut. 

Mal­bika á Reykja­nes­braut á milli Arn­ar­nes­veg­ar og Fífu­hvamms­veg­ar. Kafl­inn er um 400 metr­ar að lengd og verður þrengt niður í eina ak­rein. Um­ferð verður send um hjá­leið um Bæj­arlind og Fífu­hvamms­veg.

Áætlað er að fram­kvæmd­irn­ar standi frá kl. 23:00 til kl. 04:00 aðfaranótt miðviku­dags­ins 11. júní.

Þá er stefnt á að fræsa Reykja­nes­braut á milli Arn­ar­nes­veg­ar og Kaplakrika í suðurátt.

Kafl­inn er um 2 km að lengd. Þrengt verður niður í eina ak­rein og í fram­hald­inu verður um­ferð send hjá­leið um Arn­ar­nes­veg og Hafn­ar­fjarðar­veg.

Áætlað er að fram­kvæmd­irn­ar standi frá kl. 19:00 til kl. 03:00 aðfaranótt miðviku­dags­ins 11. júní.

Að lokukm er stefnt á að mal­bika Reykja­nes­braut frá af­leggj­ara við Víf­ilsstaðaveg í norðurátt.

Kafl­inn er um 560 metr­ar að lengd. Þrengt verður niður í eina ak­rein og um­ferð send hjá­leið um hring­torg á Víf­ilsstaðavegi.

Veg­far­end­ur eru beðnir um að virða merk­ing­ar og hraðatak­mark­an­ir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög ná­lægt akst­urs­braut­um.
 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert