Virðing Alþingis hafi beðið hnekki

Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins (t.h.) telur trúverðugleika og virðingu …
Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins (t.h.) telur trúverðugleika og virðingu Alþingis hafa beðið hnekki við ummæli Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns Flokks fólksins, um stuðning ríkisins til einkarekinna fjölmiðla. mbl.is/Eyþór

„Við vild­um að þessu hefði verið haldið óbreyttu, þótt við séum al­mennt á móti svona stuðningi, það er að segja að 25 pró­senta þakið yrði óbreytt svo þetta virðist ekki bein­ast beint gegn Árvakri og Sýn,ׅ“ seg­ir Jón Pét­ur Zimsen, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins og nefnd­armaður í alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd, í sam­tali við mbl.is.

Til umræðu er álit minni­hluta nefnd­ar­inn­ar á frum­varpi Loga Más Ein­ars­son­ar, menn­ing­ar-, ný­sköp­un­ar- og há­skólaráðherra, til breyt­ing­ar á fjöl­miðlalög­um sem hann lagði fram drög að 20. fe­brú­ar og ger­ir ráð fyr­ir að hlut­fall stuðnings­greiðslu til hvers um­sækj­anda um stuðning geti ekki orðið hærra en 22 pró­sent af heild­ar­fjárveit­ingu til þess verk­efn­is.

Gild­is­tími ákvæða frum­varps­ins er þó ein­göngu til næstu ára­móta, en í til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðsins á sín­um tíma sagði þó að frum­varp, sem festa muni stuðning til einka­rek­inna fjöl­miðla í sessi, verði lagt fram að hausti. Frum­varp Loga Más trygg­ir því ein­göngu stuðning til einka­rek­inna miðla á yf­ir­stand­andi ári.

Vænt­ing­ar fjöl­miðla um óbreytt þak

„[Meiri­hlut­inn] vill taka Árvak­ur og Sýn niður og auka hlut héraðsmiðla á kostnað þeirra,“ held­ur Jón Pét­ur áfram, „við [minni­hlut­inn] vild­um það ekki. Það sem við vild­um og kem­ur fram í minni­hluta­áliti okk­ar er að fjöl­miðlar hafi lík­leg­ast þær vænt­ing­ar að þessu 25 pró­senta þaki yrði bara fram haldið óbreyttu á milli ára þar til heild­ar­end­ur­skoðun hefði komið fram.“

Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, lagði í febrúar …
Logi Már Ein­ars­son, menn­ing­ar-, ný­sköp­un­ar- og há­skólaráðherra, lagði í fe­brú­ar fram drög að frum­varpi um breyt­ingu á lög­um um fjöl­miðla sem verið hef­ur til um­fjöll­un­ar í alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd þings­ins. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Minni­hlut­inn telji að svo halda megi tveim­ur stærstu einka­reknu fjöl­miðlun­um þannig að þeir séu sam­keppn­is­hæf­ari við rík­is­miðil­inn RÚV megi ekki lækka téð þak. „Til þess að trú­verðug­leiki og virðing Alþing­is megi hald­ast eins lítið skert og hægt er má ekki lækka þakið vegna um­mæla Sig­ur­jóns Þórðar­son­ar [þing­manns Flokks fólks­ins og for­manns at­vinnu­vega­nefnd­ar] um að ráðast á Árvak­ur og Sýn,“ seg­ir Jón Pét­ur.

Ekki megi elta um­mæli Sig­ur­jóns og lækka svo þakið strax í kjöl­farið.

„Ég held að trú­verðug­leiki og virðing Alþing­is hafi beðið hnekki við þessi um­mæli, en til þess að lág­marka þá hnekki má ekki láta um­mæli hans raun­gerst. Núna virðist það vera þannig þótt Logi [Már Ein­ars­son] hafi for­dæmt um­mæl­in. Fjöl­miðlar vænta þess að þetta hald­ist óbreytt, Árvak­ur og Sýn, þess­ir tveir stóru, þurfa að hafa full­an slag­kraft í aðhaldi á RÚV og svo að virðing og trú­verðug­leiki Alþing­is skerðist ekki enn meir eft­ir um­mæli Sig­ur­jóns ætti að halda þessu óbreyttu eða mögu­lega hækka þakið fyr­ir þessa miðla sem hann ætlaði að ráðast á,“ seg­ir þingmaður­inn.

Jón Pét­ur kveðst hafa verið bú­inn að skrifa minni­hluta­álit, en Guðrún Haf­steins­dótt­ir flokks­syst­ir hans hafi viljað breyta því í frá­vís­un­ar­til­lögu.

„En með því að breyta í frá­vís­un­ar­til­lögu fengju fjöl­miðlar ekk­ert greitt þetta ár þannig að við hætt­um við það,“ seg­ir Jón Pét­ur Zimsen þingmaður af áliti minni­hluta alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert