Framkvæmdirnar óheppilegar en afturkræfar

Vala segir að jarðvegurinn ofan á beðaslettum verð fjarlægður.
Vala segir að jarðvegurinn ofan á beðaslettum verð fjarlægður. Samsett mynd

Vala Garðars­dótt­ir, forn­leifa­fræðing­ur hjá Veit­um, seg­ir fram­kvæmd­irn­ar við Laug­ar­nes óheppi­leg­ar en aft­ur­kræf­ar. Auðvelt sé að fjar­lægja jarðveg af beðaslétt­um sem liggja við hlið skurðar­ins. Fyr­ir ligg­ur þó að verktaki hóf fram­kvæmd­ir á svæðinu án leyf­is.

Greint var frá því um helg­ina að fram­kvæmd­ir á veg­um Veitna hefðu valdið „óaft­ur­kræf­um“ skemmd­um á friðlýstu svæði Laug­ar­ness, svo­kölluðum beðaslétt­um í túni. Laug­ar­nes­vin­ir, óform­leg sam­tök fólks sem þykir vænt um Laug­ar­nestang­ann, sögðu fram­kvæmd­irn­ar hafa átt sér stað án vitn­eskju Minja­stofn­un­ar. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Veit­um var þó sam­ráð við Minja­stofn­un vegna verk­efn­is­ins.

Að sögn Völu var sótt um fram­kvæmd­ar­leyfi þann 29. maí og var enn verið að bíða eft­ir leyfi frá Minja­stofn­un þegar fram­kvæmd­ir hóf­ust. Verktak­inn hóf því fram­kvæmd­ir um helg­ina án leyf­is en að sögn Völu taldi hann sig ekki vera að vinna inn­an eft­ir­lits­svæðis.

Lagna­sk­urður­inn ligg­ur að mestu leyti ofan í göml­um lagna­sk­urði. Það er því aðeins verið að eiga við svæði sem hef­ur þegar verið raskað. Vala seg­ir að það sé samt sem áður óheppi­legt að jarðveg­ur hafi verið lagður ofan á beðaslétt­ur frá 19. öld en það sé vel hægt að fjar­lægja hann án þess að það hafi áhrif á jarðveg­inn.

„Hann áttaði sig ef­laust ekki á því að hann væri kom­inn ná­lægt eft­ir­lits­svæði [...] Við mun­um hafa eft­ir­lit með þessu svæði og sá jarðveg­ur sem er kom­inn ofan á beðaslétt­urn­ar verður fjar­lægður. Það er því ekki rétt að það séu óaft­ur­kræf­ar skemmd­ir,“ seg­ir Vala í sam­tali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert