Göngumaðurinn sem leitað hefur verið að á Esjunni er fundinn.
Þetta staðfestir Heimir Ríkarðsson, stöðvarstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. Hann hafði ekki upplýsingar um líðan mannsins þegar hann fannst.
Leitað hefur verið að manninum síðan í gærkvöldi en slysavarnafélaginu Landsbjörg barst tilkynning í gærkvöldi frá fólki sem fór að lengjast eftir manninum.
Allar tiltækar björgunarsveitir á suðvesturhorninu tóku þátt í leitinni.