Orri Harðarson látinn

Orri Harðarson rithöfundur og tónlistarmaður er látinn, á 53. aldursári.
Orri Harðarson rithöfundur og tónlistarmaður er látinn, á 53. aldursári. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Orri Harðar­son, tón­list­armaður og rit­höf­und­ur, lést á Heil­brigðis­stofn­un Vest­ur­lands á Akra­nesi 7. júní síðastliðinn, á 53. ald­ursári, eft­ir skamm­vinna bar­áttu við krabba­mein.
Orri fædd­ist á Akra­nesi 12. des­em­ber 1972 og ólst þar upp. For­eldr­ar hans eru Hörður Ó. Helga­son, fv. skóla­meist­ari og knatt­spyrnuþjálf­ari, og Sigrún Sig­urðardótt­ir, fv. lækna­rit­ari.

Orri fékk snemma áhuga á tónlist og gaf út sína fyrstu plötu tví­tug­ur að aldri. Hann starfaði um ára­bil sem tón­list­armaður, gaf út nokkr­ar hljóm­plöt­ur og hlaut ýms­ar viður­kenn­ing­ar á þeim vett­vangi, m.a. Íslensku tón­list­ar­verðlaun­in. Orri vann einnig við upp­töku­stjórn í hljóðver­um og út­setti tónlist fyr­ir aðra.
Hann sneri sér síðan meira að ritstörf­um. Árið 2008 sendi hann frá sér sína fyrstu bók, Alka­sam­fé­lagið, og hlaut fyr­ir hana Fræðslu- og vís­indaviður­kenn­ingu Siðmennt­ar. Árið 2014 kom út hans fyrsta skáld­saga, Stund­ar­fró, og tveim­ur árum síðar kom út skáld­sag­an End­ur­fund­ir. Hann vann einnig við þýðing­ar og ýmis önn­ur ritstörf. Orri var út­nefnd­ur bæj­arlistamaður Ak­ur­eyr­ar 2017-2018.

Dæt­ur Orra með fv. eig­in­konu, Ingu Elísa­betu Vé­steins­dótt­ur, eru Karólína, 14 ára, og Birgitta Ósk, 11 ára.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert