Rannsaka tildrög banaslyssins í Brúará

Hlauptungufoss er einn af þremur fossum í Brúará. Erlendur ferðamaður …
Hlauptungufoss er einn af þremur fossum í Brúará. Erlendur ferðamaður féll í ána skammt frá fossinum í síðustu viku og lést. mbl.is/

Rann­sókn­ar­deild lög­reglu­stjór­ans á Suður­landi er enn með til rann­sókn­ar bana­slys við Hlauptungu­foss í Brúárá í síðustu viku þar sem er­lend kona á fer­tugs­aldri féll ofan í ána og var úr­sk­urðuð lát­in á vett­vangi.

Jón Gunn­ar Þór­halls­son, yf­ir­lög­reglu­stjóri hjá lög­regl­unni á Suður­landi, seg­ir að rann­sókn á til­drög­um slyss­ins sé í full­um gangi og að hún sé í hefðbundnu ferli en ekk­ert sak­næmt átti sér stað að sögn Jóns Gunn­ars.

Þetta var þriðja bana­slysið á síðustu fimm árum í Brúará en all­ir hinir látnu voru er­lend­ir ferðamenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert