Lögreglan handsamaði mann sem reyndi að stinga lögreglu af á stolinni bifreið í hverfi 105. Ökumaðurinn ók yfir grasbala til að koma sér í undan og í framhaldinu reyndi hann að hlaupa undan lögreglu en hann var að lokum handsamaður.
Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökuréttindum , vörslu fíkniefna, vopnalagabrot fyrir að bera vopn á almannafæri og nytjastuld á ökutæki. Hann var vistaður í fangaklefa vegna málsins og er það til rannsóknar.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Lögreglustöð 2, sem sinnir Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanes, hafði afskipti af ökumanni sem er grunaður um ýmis umferðarlagabrot en hann lenti í umferðaróhappi. Umferðalagabrotin sem hann er grunaður um er misnotkun á skráningarmerkjum, skjalafals, akstur sviptur ökuréttindum, tryggingar ekki í gildi og ekki búið að færa ökutækið til aðalskoðunar. Ökumaður fluttur á slysadeild til frekari skoðunar og málið til rannsóknar.
Aðili var til vandræða í miðbæ Reykjavíkur að ónáða gangandi vegfarendur. Honum var gert að láta af hegðun sinni sem hann lofaði að gera.