Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, hefur boðað starfsfólk fyrirtækisins á fund í sal 1 í Egilshöll klukkan 17 á morgun.
Þetta kemur fram í fundarboði sem hún sendi starfsmönnum en þar kemur einnig fram að stórt sumar sé í vændum hjá fyrirtækinu.
Á fundinum sé ætlað að stilla saman strengi fyrir stórsókn fram undan en ekki er tilgreint um hver sú stórsökn sé.
„Vonast til að sjá ykkur sem allra flest, þið viljið ekki missa af þessu!“ segir í póstinum.
Í síðustu viku var orðrómur uppi þess efnis að til stæði að leggja niður vörumerkin Stöð 2 og Vodafone og að tilkynnt yrði um það í þessari viku.
Herdís sagði þá aðspurð við mbl.is að hún gæti ekki tjáð sig um þann orðróm. Hún gat heldur ekki tekið fyrir að þetta stæði til.