„Stolt, fötluð og óendanlega þakklát“

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Eiður Welding, fulltrúi UngÖBÍ, og …
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Eiður Welding, fulltrúi UngÖBÍ, og Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Ljósmynd/Stjórnarráðið

„Stolt, fötluð og óend­an­lega þakk­lát. Ekk­ert um okk­ur án okk­ar. Takk fyr­ir.“

Svona endaði Inga Sæ­land, fé­lags- og hús­næðismálaráðherra, ávarp sitt á þingi aðild­ar­ríkja um samn­ing Sam­einuðu þjóðanna um rétt­indi fatlaðs fólks í New York-borg í Banda­ríkj­un­um í kvöld.

Inga sagði frá lífs­hlaupi sínu sem lög­blind­ur og fatlaður ein­stak­ling­ur. Sagði hún frá því hvernig hún veikt­ist sem barn og missti nær alla sjón sína.

Hún hafi skamm­ast sín fyr­ir fötl­un sína sem barn en sé nú fyrsta mann­eskj­an með fötl­un sem gegn­ir ráðherra­embætti á Íslandi.

„Fá­tækt­in var mis­kunn­ar­laus“

Þá sagði hún frá erfiðleik­um henn­ar og fjöl­skyldu henn­ar þegar maður henn­ar þurfti að hætta að vinna eft­ir að hafa lent í slysi.

„Fá­tækt­in var mis­kunn­ar­laus,“ sagði Inga. Þau hjón­in höfðu ekki átt efni á áhuga­mál­um barna sinna og kenndi Inga sjálfri sér um.  

Lýsti hún því hvernig hlut­irn­ir hafi farið að breyt­ast eft­ir að hún fékk stuðning vegna fötl­un­ar sinn­ar. Hún hafi lokið laga­námi 56 ára, stofnað stjórn­mála­flokk, farið á þing og loks orðið ráðherra með það að mark­miði að vinna að rétt­ind­um fatlaðra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert