Stórgræddi á sölu íbúðarinnar til sendiráðsins

Stefan Strandberg á 36 landsleiki að baki fyrir hönd Noregs.
Stefan Strandberg á 36 landsleiki að baki fyrir hönd Noregs. Samsett mynd

Norski fyrr­ver­andi knatt­spyrnumaður­inn Stef­an Strand­berg hagnaðist vel á sölu íbúðar sinn­ar til ís­lenska sendi­ráðsins í Osló.

Þessi nýi sendi­herra­bú­staður í Osló var áður þrjár íbúðir en þær hafa nú verið gerðar að einni. Strand­berg keypti íbúðirn­ar þrjár árið 2020 fyr­ir 38 millj­ón­ir norskra króna sem jafn­gild­ir um 475 millj­ón­um ís­lenskra króna.

Íslenska sendi­ráðið í Osló greiddi um 60 millj­ón­ir norskra króna eða 750 millj­ón­ir ís­lenskra króna fyr­ir íbúðina.

Norska dag­blaðið VG grein­ir frá þessu nú í dag. 

Eldri bú­staður­inn er enn óseld­ur

Sendi­ráðið í Osló festi kaup á þess­um nýja sendi­herra­bú­stað fyrr í mánuðinum. Sendi­ráðið hef­ur áður greint frá því að gera þurfi nauðsyn­leg­ar end­ur­bæt­ur á bú­staðnum en end­an­leg­ur viðbót­ar­kostnaður af þeim sök­um ligg­ur ekki fyr­ir að svo stöddu.

Bú­staður­inn er við Aker-bryggju í Frogner-hverfi í Osló en fast­eigna­verð er hvergi hærra í Osló en í hverf­inu.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráðherra sagði í sam­tali við mbl.is í sein­ustu viku að ákvörðunin um sölu á eldri sendi­herra­bú­staðnum og kaup­in á þeim nýju hefði verið tek­in á for­send­um hag­kvæmni og til að færa bú­staðinn nær þeim stofn­un­um sem sendi­ráðin eru alla jafna í sam­bandi við.

Eldri sendi­herra­bú­staður­inn í Osló er nú á sölu, ásett verð er um einn millj­arður ís­lenskra króna. Bú­staður­inn hef­ur þó enn ekki selst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert