Vilja að fasteignaskattar verði endurskoðaðir

Sveitarfélög eru hvött til að endurskoða kerfi fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði.
Sveitarfélög eru hvött til að endurskoða kerfi fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Öllum sveit­ar­fé­lög­um lands­ins hef­ur borist er­indi frá fé­lagi at­vinnu­rek­enda þar sem þau eru hvött til þess að end­ur­skoða álagn­ingar­pró­sentu fast­eigna­skatts á at­vinnu­hús­næði til að mæta hækk­un fast­eigna­mats.

Þau eru einnig hvött til þess að eiga sam­tal við ríkið um breyt­ing­ar á kerfi skatt­lagn­ing­ar fast­eigna, þannig að minni sveifl­ur verði og meiri fyr­ir­sjá­an­leiki.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Fé­lagi at­vinnu­rek­enda.

FA bend­ir í til­kynn­ingu sinni á það að fast­eigna­mat hækki um 9,2% á milli ára þar sem mat at­vinnu­hús­næðis hækk­ar um 3,8% á höfuðborg­ar­svæðinu en um 9,1% á lands­byggðinni.

Skatt­ar háir hér á landi

Fram kem­ur í frétta­til­kynn­ing­unni að fast­eigna­skatt­ar á at­vinnu­hús­næði séu háir og hafa hækkað mikið. Á síðasta ári var álagður skatt­ur á at­vinnu­hús­næði 36,6 millj­arðar króna og ætla má að hann sé nær 39 millj­örðum í ár.

„Skatt­lagn­ing, sem bygg­ir á sveifl­um í fast­eigna­verði en ekki raun­veru­legri af­komu fyr­ir­tækja, leggst þungt á fyr­ir­tæki, ekki síst þau minni og meðal­stóru. Fé­lag at­vinnu­rek­enda tel­ur því fulla ástæðu til að sveit­ar­fé­lög­in skoði að lækka álagn­ingar­pró­sentu fast­eigna­skatts á at­vinnu­hús­næði til að mæta hækk­un­um fast­eigna­mats­ins.

Fé­lagið hvet­ur jafn­framt til upp­byggi­legs sam­tals sveit­ar­fé­lag­anna og rík­is­valds­ins um breytt kerfi skatt­lagn­ing­ar fast­eigna með minni sveifl­ur og meiri fyr­ir­sjá­an­leika að mark­miði,“ seg­ir í er­indi FA til sveit­ar­fé­lag­anna.

FA seg­ist staldra við það sem fram kem­ur í til­kynn­ingu Hús­næðis- og mann­virkja­stofn­un­ar. Þar er greint frá því að stofn­un­in ætli að end­ur­skoða ein­hliða aðferðir við gerð fast­eigna­mats at­vinnu­eigna. FA hvet­ur til þess að vinna eins og þessi fari fram í sam­ráði og sam­tali.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert