Andlát: Viðar Símonarson

Viðar Símonarson
Viðar Símonarson

Viðar Sím­on­ar­son, íþrótta­kenn­ari og fv. landsliðsmaður í hand­bolta og landsliðsþjálf­ari, lést á Land­spít­al­an­um í Foss­vogi 2. júní síðastliðinn, 80 ára að aldri.

Viðar fædd­ist 25. fe­brú­ar 1945 í Hafnar­f­irði og ólst þar upp. For­eldr­ar hans voru Sím­on Marinós­son, mat­sveinn og sjó­maður, og Ólöf Helga­dótt­ir hús­móðir.

Viðar lauk skóla­göngu í Hafnar­f­irði og tók síðan íþrótta­kenn­ara­próf árið 1965. Hann kenndi íþrótt­ir í Haga­skóla og síðar Verzl­un­ar­skóla Íslands. Viðar lék um ára­bil með ís­lenska hand­bolta­landsliðinu og skoraði 203 mörk í 93 leikj­um. Meðal eft­ir­minni­legra marka má nefna jöfn­un­ar­mark hans gegn Rúm­en­íu í æsispenn­andi leik í Laug­ar­dals­höll 1971. Loka­töl­ur voru 14:14 en Rúm­en­ar voru þá ríkj­andi heims­meist­ar­ar í hand­bolta.

Viðar lék með landsliðinu á Ólymp­íu­leik­un­um í München 1972 og árið 1974 var hann val­inn hand­knatt­leiksmaður árs­ins. Þá var hann í lyk­il­hlut­verki í landsliðinu sem sigraði Dan­mörku, 20:16, í vináttu­lands­leik í Laug­ar­dals­höll­inni 23. mars 1975. Hann lék með Hauk­um og þjálfaði liðið um skeið en skipti yfir til FH árið 1971 þar sem hann vann fjölda titla.

Hann stýrði ís­lenska landsliðinu árin 1975–1976 og hélt síðan áfram þjálf­un fé­lagsliða. Hann gerði karlalið Hauka að bikar­meist­ur­um árið 1980 og end­ur­tók leik­inn níu árum síðar er hann þjálfaði kvennalið Stjörn­unn­ar í Garðabæ. Voru þetta fyrstu bikar­meist­ara­titl­ar fé­lag­anna.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Viðars er Hall­dóra Sig­urðardótt­ir, fv. flug­freyja, f. 1949. Börn þeirra eru Sig­urður, f. 1976, og Dóra, f. 1981. Áður eignaðist Viðar dótt­ur­ina Guðnýju Björk, f. 1967, með fyrri eig­in­konu, Guðfinnu Jóns­dótt­ur. Barna­börn­in eru fimm tals­ins.

Útför Viðars fer fram frá Hafn­ar­fjarðar­kirkju 18. júní kl. 13.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert