Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt drög í samráðsgátt stjórnvalda að breytingu á reglugerð um meðferð umbúða og umbúðaúrgangs. Markmiðið er að innleiða Evróputilskipun.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Markmiðið með reglugerðinni er að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um breytingu á tilskipum um umbúðir og umbúðaúrgang til að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið.
„Meðal helstu breytinga er að kveðið er á um skyldu til lágmarkshlutfalls endurunnins plasts í einnota plastflöskum fyrir drykkjarvörur eða 25% frá 1. janúar 2026 og 30% frá 1. janúar 2030. Jafnframt eru sett söfnunarmarkmið fyrir einnota plastflöskur fyrir drykkjarvörur sem eru 77% að lágmarki fyrir lok árs 2025 en 90% fyrir skilagjaldsskyldar umbúðir. Fyrir lok árs 2029 skal hlutfallið hafa náð 90% í báðum tilvikum,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Á Íslandi hefur verið skilakerfi á drykkjarumbúðum í 35 ár. Til að tryggja það að fólk endurvinni umbúðirnar er lagt á þær skilagjald sem er svo endurgreitt neytendum við skil.
Söfnunarhlutfall einnota drykkjarumbúða úr plasti hefur verið um 90% síðustu ár, að er kemur fram í tilkynningunni.
Til stendur nú að setja af stað nýtt endurvinnslumarkmið fyrir umbúðaúrgang og sett sértæk markmið fyrir ólíkar úrgangstegundir.