Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðið Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, að flytja hátíðarávarp á Austurvelli á 17. júní, í hennar stað. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. Hefði þetta verið fyrsta hátíðarávarp Kristrúnar sem forsætisráðherra.
Hátíðarávarpið hefur ávallt verið flutt af forsætisráðherra og er því um nýbreytni að ræða. Þá verður athöfnin sýnilegri almenningi en áður.
Hátíðarathöfnin á Austurvelli verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Rúv og bein útvarpsútsending verður frá hátíðarguðsþjónustunni sem hefst klukkan kl. 10.15.
Að öðru leyti verður dagskráin með hefðbundnum hætti.
Forsætisráðherra leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og fjallkonan flytur ávarp en venju samkvæmt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til hún gengur út á völlinn. Að lokinni athöfn fer skrúðganga frá Austurvelli í Hólavallakirkjugarð.
Frekari upplýsingar um hátíðarhöld og götulokanir í borginni má nálgast á vefnum www.17juni.is.
Dagskrá á Austurvelli hefst kl. 11.10:
Kórinn Graduale Nobili syngur Yfir voru ættarlandi
Forsætisráðherra leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar
Kór syngur þjóðsönginn
Hátíðarræða forseta Íslands
Kór syngur Hver á sér fegra föðurland
Fjallkonan flytur ávarp
Hornleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika Ég vil elska mitt land
Skrúðganga frá Austurvelli í Hólavallakirkjugarð við Suðurgötu kl. 11.50.